Hópur:
Stjórn prestssetra
Dagsetning:
06/28/2009 (daglangt)
6. stjórnarfundur starfsársins 2008 – 2009 28. júní 2009, kl. 11.00
Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31, salur 4. hæð
Fundargerð
Mætt voru Lárus Ægir Guðmundsson, sr. Þorgrímur Daníelsson og Guðmunda Kristjánsdóttir. Þá sátu fundinn verkefnastjórar af fasteignasviði Kirkjuráðs, Anna Guðmunda Ingvarsdóttir og Höskuldur Sveinsson og Kristín Mjöll Kristinsdóttir sem sátu fundinn að hluta. Anna Guðmunda ritaði fundargerð.
1. Fundargerð síðasta fundar var samþykkt og undirrituð. Fundargerð 4. fundar var jafnframt undirrituð.
2. Verkefni í vinnslu
Höskuldur og Kristín Mjöll kynntu þau viðhaldsverkefni sem hafa verið í vinnslu.
3. Fjármál
Farið var yfir stöðu mála varðandi fjárhagsáætlun og sérstaklega farið yfir þau verkefni sem komin eru fram úr áætlun. Liggur ljóst fyrir að skera þarf niður í öðrum liðum fjárhagsáætlunar vegna framúrkeyrslu og er Kristínu og Höskuldi falið að gera tillögur um niðurskurð til að leggja fyrir stjórnina.
4. Hrísey – veggur við lóðarmörk
Lagt var fram bréf sr. Huldu Hrannar M. Helgadóttur umráðamanns prestssetursins í Hrísey varðandi vegg á lóðarmörkum prestssetursins og íþróttamannvirkis. Áður en hægt er að taka ákvörðun um hvort og/eða hvað aðhafast skuli í málinu þykir stjórn prestssetra rétt að skoða þær aðstæður sem í bréfinu er lýst og mun setja sig í samband við umráðamann vegna málsins.
5. Borg á Mýrum – Beiðni um lagningu vatnslagnar
Borist hefur beiðni frá Einari Óskarssyni á Tungulæk og fl. um leyfi til þess að leggja vatnslögn í gegnum land prestssetursjarðarinnar Borgar á Mýrum. Lagður var fram uppdráttur sem sýnir staðsetningu lagnarinnar. Komið hefur fram að sr. Þorbjörn Hlynur Árnason umráðamaður jarðarinnar er fylgjandi beiðninni. Stjórnin ákvað að samþykkja beiðnina með þeim skilyrðum að ummerki um hana verði eins lítil og kostur er. Frekari skilyrði verða jafnframt tilgreind nánar í bréfi til umsækjanda.
6. Sauðárkrókur – kaup á fasteign
Greint var frá því að eigendur Barmahlíðar 7 sem er einlyft íbúðarhús á Sauðárkróki hafi tekið kauptilboði Kirkjumálasjóðs í húsið. Kauptilboðið var lagt fram til kynningar.
7. Miklibær – Kauptilboð í Borgarhól
Lagt var fram til kynningar kauptilboð frá Jóni Stefánssyni í land Borgarhóls í Akrahreppi en Borgarhóll er hjáleiga prestsetursins Miklabæjar í Skagafirði. Tilboðið gildir fram til 1. desember 2009 og hljóðar upp á 6.500.000 kr.
8. Reynivellir – leiðrétting leigugreiðslna
Lagt var fram bréf sr. Gunnars Kristjánssonar umráðamanns prestssetursjarðarinnar á Reynivöllum dags. 18. júní 2009 þar sem fram koma athugasemdir hans við fyrirhugaðri leiðréttingu á afgjaldi fyrir prestssetrið vegna laxveiðihlunninda. Stjórn prestssetra fellst ekki á að þær athugasemdir sem þar koma fram séu nægilegar til þess að réttlæta að fallið verði frá leiðréttingu afgjalds vegna veiðihlunninda. Í bréfi sr. Gunnars komu jafnframt fram athugasemdir varðandi útihús en stjórnin ákvað að fresta ákvarðanatöku varðandi þann þátt.
9. Eskifjörður – staða varðandi haldsbréf og fl.
Lagt var fram bréf sr. Davíðs Baldurssonar á Eskifirði varðandi undirritun haldsbréfs o.fl. dags. 2. júní 2009. Málinu frestað.
10. Hruni – hitaveita
Lagður var fram yfirtökusamningur þar sem Hitaveita Flúða yfirtekur allar eignir Átaks hitaveitufélags, tekur við rekstri félagsins og skuldbindur sig til þess að ráðstafa ríkisstyrki til endurbóta á lagnakerfi veitunnar og takast á hendur þær þjónustuskyldur sem áður hvíldu á hitaveitufélaginu Átaki. Í fylgiskjali með samningnum kemur fram hver kostnaður prestssetursjarðarinnar Hruna er vegna endurnýjunar á lögnum en gert er ráð fyrir tveimur inntökum á bænum. Stjórn prestssetra samþykkir samninginn með fyrirvara um samþykki Kirkjuráðs enda er hér um ráðstöfun að ræða sem bindur Kirkjumálasjóð til lengri tíma og stjórnin telur utan þeirra fjárheimilda sem sér eru veittar. Stjórnin vill þó árétta að hún telur að óumflýjanlegt hafi verið að taka ráðast í endurbætur á hitavatnslögninni á prestssetrinu og að kostnaðarskipting á milli bæja hafi verið eðlileg og sanngjörn.
11. Útskálar – beiðni um yfirtöku lóðarleigukrafna
Borist hefur beiðni frá sr. Birni Sveini Björnssyni sem hefur sagt lausu Útskálaprestakalli um að Kirkjumálasjóður yfirtaki ógreiddar kröfur vegna lóðarleigu á Útskálum og greiði sr. Birni þegar út hluta krafnanna. Beiðninni var hafnað.
12. Laufás – beiðni um leigu á jörðinni hafnað
Lagt var fram bréf hjónanna Þórarins Péturssonar og Hólmfríðar Björnsdóttur þar sem óskað er eftir leigu á prestssetursjörðinni Laufási. Beiðninni var hafnað.
13. Önnur mál
Rætt var um framkvæmdir á Seyðisfirði, Mosfelli í Grímsnesi og í Grindavík.