Hópur:
Stjórn prestssetra
Dagsetning:
09/14/2009 (daglangt)
7. stjórnarfundur starfsársins 2008 – 2009 14. september 2009, kl. 10.30
Símafundur
Fundargerð
Mætt voru Lárus Ægir Guðmundsson, sr. Þorgrímur Daníelsson og Guðmunda Kristjánsdóttir. Þá sátu einnig fundinn verkefnastjórar af fasteignasviði Kirkjuráðs, Kristín Mjöll Kristinsdóttir og Anna Guðmunda Ingvarsdóttir sem ritaði fundargerð. Höskuldur Sveinsson forfallaðist vegna veikinda.
1. Fundargerð síðasta fundar var samþykkt.
2. Verkefni í vinnslu
Kristín Mjöll greindi frá þeim verkefnum sem eru í vinnslu.
Sauðárkrókur, Barmahlíð 7: Á Sauðárkróki standa yfir breytingar á baðherberbergi á nýjum prestsbústað við Barmahlíð 7.
Samþykkt var að skoða möguleika þess að byggja skála við forstofu til að bæta aðgengi. Höskuldi Sveinssyni, verkefnisstjóra á fasteignasviði var falið að hafa umsjón með gerð kostnaðaráætlunar og teikninga að viðbyggingu til að kynna fyrir stjórninni.
Suðureyri, Túngata 6: Borist hefur tilboð í fóðrun á vatns- og frárennslislögnum að fjárhæð þrjár milljónir en ljóst þykir að heildarverkið mun verða miklu dýrara. Hins vegar er ástand lagnanna það slæmt að búseta í húsinu er vart bjóðandi á meðan þetta ástand varir. Vegna mikils kostnaðar við endurbætur og ástands hússins að öðru leyti vill stjórn prestssetra kanna það í samráði við umráðamann prestssetursins að útvegað verði annað húsnæði í prestakallinu eða á nærliggjandi svæði.
3. Stafholt – girðingar og málning
Lagt var fram bréf frá sr. Elínborgu Sturludóttur þar sem hún í fyrsta lagi fer þess á leit að hún fái að girða þær merkja- og túngirðingar í Stafholti sem eru mjög lélegar eða fallnar. Muni hún leggja fram ljósmyndir því til staðfestu. Þær ljósmyndir hafa ekki borist og eru jafnframt engar upplýsingar um umfang þeirra framkvæmdar sem hér um ræðir. Er óskað eftir frekari upplýsingum frá sr. Elínborgu um framkvæmdina og málinu frestað að sinni. Í öðru lagi óskar sr. Elínborg eftir fjárveitingu fyrir málningu til að mála útihús í Stafholti en hún muni sjálf bera kostnað af vinnu við að láta mála þau og var sú beiðni samþykkt.
4. Hrísey – veggur við lóðarmörk o.fl.
Tekið var til umfjöllunar mál sem frestað var á síðasta fundi stjórnar, þá 4. mál. Var þá lagt fram bréf sr. Huldu Hrannar M. Helgadóttur umráðamanns prestssetursins í Hrísey varðandi að settur verði veggur eða há girðing á lóðarmörkum prestssetursins og íþróttamannvirkis o. fl. Lárus Ægir og Þorgrímur greindu frá ferð sinni til Hríseyjar þar sem þeir skoðuðu aðstæður. Þóttu þeim athugasemdir sr. Huldu varðandi truflun af fjölnotahúsi Hríseyinga hafa við rök að styðjast, bæði hvað varðar innsýn frá heitum pottum og umferð um göngustíg meðfram lóðarmörkum. Lagt er til að þess verði farið á leit við Akureyrarbæ að viðunandi lausn verði fundin á málinu.
5. Breiðabólsstaður – útihús og girðingar
Lárus Ægir greindi frá ferð sinni á Breiðabólsstað vegna skoðunar á ástandi útihúsa þar á bæ. Samþykkt var leita tilboða í endurbætur á hlöðunni og þakið á hesthúsunum og fara í verkið ef viðunandi tilboð fengist.
Greint var frá beiðni eigenda Þórunúps um að eigendur Breiðabólsstaðar tækju þátt í að endurnýja merkjagirðingar milli jarðanna. Beiðnin var samþykkt miðað við þau gögn sem fram voru lögð á fundinum.
6. Laufás – fyrirkomulag húsaleigu
Umráðamaður prestssetursins í Laufási hafði óskað eftir breyttu fyrirkomulagi á leigugreiðslum. Beiðninni var hafnað.
7. Útskálar – beiðni um niðurfellingu húsaleigu
Fráfarandi umráðamaður prestssetursins í Útskálum óskaði eftir niðurfellingu á húsaleigu, en hann flutti úr prestssetrinu tveimur mánuðum áður en embættistími hans rann út. Samkvæmt starfsreglum um prestssetur skal umráðamaður prestsseturs greiða húsaleigu meðan hann gegnir embætti. Ósk umráðamanns er hafnað. Sr. Þorgrímur Daníelsson sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Er hér um að ræða staðfestingu á ákvörðun meirihluta stjórnar prestssetra sem tekin var á milli funda.
8. Kolfreyjustaður – jörð undanskilin prestssetri
Í tilefni að því að til stóð að auglýsa embætti sóknarprests í Kolfreyjustaðaprestakalli, Austfjarðaprófastsdæmi fór kirkjuráð þess á leit við stjórn prestssetra með bréfi dags. 1. júlí 2009 að jörðin Kolfreyjustaður yrði undanskilin prestssetrinu með heimild í 2. mgr. 10. gr. starfsreglna um prestssetur nr. 1027/2007. Væri ljóst að ekki yrði hægt að leggja nýjum presti til prestssetrið í núverandi ástandi vegna laklegs ástands íbúðarhúss. Að fenginni tillögu sóknarnefndar Kolfreyjustaðarprestakalli ákvað kirkjuráð að kaupa íbúðarhús á Búðum sem lagt yrði til sem prestssetur þar til tekin hefur verið endanleg ákvörðun um framtíðarstaðsetningu prestssetursins.
Meirihluti stjórnar samþykkti með vísun í ofangreint að undanskilja jörðina Kolfreyjustað prestssetrinu og leggja þess í stað til íbúðarhús á Búðum. Jörðin er því hvorki inni í grunni til leigu né fylgir hún embættinu. Hins vegar yrði stjórninni heimilt að semja við nýjan sóknarprest um nytjar og umsjón með jörðinni ef hann óskar þess.
Sr. Þorgrímur Daníelsson greiðir atkvæði á móti tillögunni. Er hér um að ræða staðfestingu á ákvörðun meirihluta stjórnar prestssetra sem tekin var á milli funda.
9. Útskálar – jörð undanskilin prestssetri
Í tilefni að því að til stóð að auglýsa embætti sóknarprests í Útskálaprestakalli, Kjalarnesprófastsdæmi fór kirkjuráð þess á leit við stjórn prestssetra með bréfi dags. 1. júlí 2009 að jörðin Útskálar yrði undanskilin prestssetrinu með heimild í 2. mgr. 10. gr. starfsreglna um prestssetur nr. 1027/2007. Beiðni kirkjuráðs var aðallega tilkomin vegna fyrirhugaðra söluáforma en til stendur að óska eftir heimild kirkjuþings 2009 til sölu jarðarinnar. Þá þótti jafnframt eðlilegt að undanskilja jörðina vegna þeirra lóðarleigutekna sem jörðin skilar.
Meirihluti stjórnar samþykkti með vísun í ofangreint að undanskilja jörðina Útskála prestssetrinu. Jörðin er því hvorki inni í grunni til leigu né fylgir hún embættinu. Embættinu mun fylgja prestsbústaðurinn Skagabraut 30, Garði ásamt afmarkaðri lóð á Útskálajörðinni eins og nánar greinir í haldsbréfi.
Sr. Þorgrímur Daníelsson greiðir atkvæði á móti tillögunni. Er hér um að ræða staðfestingu á ákvörðun meirihluta stjórnar prestssetra sem tekin var á milli funda.
10. Eskifjörður – haldsbréf o.fl.
Tekið var fyrir svarbréf sr. Davíðs Baldurssonar á Eskifirði dags. 2. júní 2009 þar sem hann lýsir afstöðu sinni varðandi undirritun haldsbréfs fyrir prestssetrið að Hátúni 13 á Eskifirði. Meirihluti stjórnar telur að ekki sé hægt að fallast á þau rök sem sr. Davíð heldur fram gegn því að undirrita haldsbréfið. Telur stjórnin rétt að gera sr. Davíð grein fyrir sjónarmiðum sínum í málinu og óska eftir afstöðu hans að nýju.
Sr. Þorgrímur Daníelsson situr hjá við atkvæðagreiðslu um málið.
11. Önnur mál
a. Skagabraut 30, Garði. Sigurður Grétar Sigurðsson hefur verið valinn sóknarprestur í Útskálaprestakalli og mun taka við embætti 1. nóvember. Kristín Mjöll skoðar og metur viðhaldsþætti hússins.
b. Saurbær á Hvalfjarðaströnd. Leigugreiðsla frá Atlantskel hefur ekki skilað sér en skv. leigusamningi er heimilt að segja samningnum upp ef greiðsla berst ekki innan þriggja mánaða. Önnu var falið að hafa samráð við umráðamann prestssetursins um uppsögn samningsins.
c. Ástandsskýrslur. Þorgrímur greindi frá að á fundi presta á prestssetrum, sem haldinn var að loknum aðalfundi Prestafélags Íslands síðastliðið vor kom fram ánægja með ástandsskýrslur sem sendar voru öllum prestum á prestssetrum í fyrra. Verða prestar beðnir um að skila inn skýrslum á sama hátt í ár.
d. Kynnt var ákvörðun biskups um breytingu á lóðarleigusamningi um lóð úr prestssetursjörðinni Hofi í Vopnafirði sem Prestssetrasjóður gerði við sr. Sigfús J. Árnason 14. desember 2006.
Fundi lauk kl. 14.00.