Fundargerð stjórnar prestssetra

Hópur: 
Stjórn prestssetra
Dagsetning: 
10/28/2009 (daglangt)
Staður: 
Kirkjuhúsið

9. stjórnarfundur starfsársins 2008 -2009 28.október 2009, kl. 10:00
Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31, salur 4. hæð

Fundargerð
Mætt voru Lárus Ægir Guðmundsson, sr. Þorgrímur Daníelsson og Guðmunda Kristjánsdóttir. Þá sátu einnig fundinn verkefnastjórar af fasteignasviði Kirkjuráðs,
Höskuldur Sveinsson og Kristín Mjöll Kristinsdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fundinn.

1.  Fundargerð síðasta fundar var lesin.

Samþykkt fundargerðar var frestað þar til 8.liður hefur verið athugaður nánar.

2.  Framkvæmdaáætlun.

Höskuldur og Kristín Mjöll lögðu fram framkvæmdaáætlun fyrir árið 2010, 2011 - 2012 og síðar.
Formaður kynnti, að til ráðstöfunar 2010 yrði líklegast 10% skerðing upphæðar frá fyrra ári.
Farið var ítarlega yfir framkvæmdir á árinu og gerði stjórnin nokkrar breytingar á forgangsröðun og var fyrirliggjandi viðhaldsáætlun skert um 10%.

3. Verkefni í vinnslu.

Kristín Mjöll og Höskuldur greindu frá þeim verkefnum sem eru í vinnslu.

4.  Önnur mál

Ekkert var tekið fyrir undir þessum lið.

Fundi lauk kl.  15:00