Fundargerð stjórnar prestssetra

Hópur: 
Stjórn prestssetra
Dagsetning: 
11/25/2009 (daglangt)
Staður: 
Kirkjuhúsið

1. stjórnarfundur starfsársins 2009 – 2010 25. nóvember 2009, kl. 10.30
Símafundur

Fundargerð

Í símasambandi voru Lárus Ægir Guðmundsson, sr. Þorgrímur Daníelsson og Guðmunda Kristjánsdóttir. Þá sat einnig fundinn Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, verkefnastjóri af fasteignasviði kirkjuráðs sem ritaði fundargerð.

1. Fundargerð síðasta fundar.

Farið var yfir fundargerð síðasta fundar og hún samþykkt án athugasemda. 

2. Stafholt – búseta prests

Kynnt voru bréf sr. Elínborgar Sturludóttur dags. 26. október 2009 og formanna sóknarnefnda í Stafholtsprestakalli dagsett sama dag. Óskað er eftir að gert verði grein fyrir þeirri framkvæmdaáætlun sem unnið er eftir við uppbyggingu á prestssetrinu í Stafholti. Ákvarðanir um nýbygginar og framkvæmdir vegna þeirra falla utan starfssviðs stjórnar prestssetra og heyra undir kirkjuráð. Verður umrædd beiðni því send kirkjuráði.

3. Leigufjárhæð – erindi frá umráðamönnum prestssetra

a. Hraungerði
Málinu frestað og verður tekið fyrir á næsta fundi.

b. Þorlákshöfn
Lagðar voru fram upplýsingar um hitunarkostnað fyrir prestssetrið Háaleiti í Þorlákshöfn. Miðað við framlögð gögn taldi stjórn prestssetra ekki vera ástæðu til þess að verða við beiðni umráðamanns prestssetursins um lækkun leigugjalds.  

c. Möðruvellir
Lagt var fram tölvubréf frá sr. Solveigu Láru Guðmundsdóttur, umráðamanns prestssetursins á Möðruvöllum í Hörgárdal þar sem óskað er eftir því að felld verði sá hlutu leigugjalds sem hún skal greiða á meðan þriggja mánaða námsleyfi hennar stendur. Sá prestur sem leysir sr. Solveigu af mun greiða leigu fyrir íbúðarhús og varðar það ekki beiðni þessa.
Samþykkt var að verða við beiðninni.  

4. Önnur mál

Lögð var fram til kynningar úttektargerð Guðna Þórs Ólafssonar prófasts í Húnavatnsprófastsdæmi vegna Hvammstangabrautar sem fram fór föstudaginn 13. nóvember 2009.
Lagðir voru fram til kynningar kaupsamningar um fasteignirnar Hamrahlíð 12 á Vopnafirði og Barmahlíð 7 á Sauðárkróki.

Fundi lauk kl. 13.00. Næsti fundur var ákveðinn 7. desember 2009.