Bænir, lestrar og hugleiðingar fyrir bænadaganna áttaHver bænavika hefur ákveðna yfirskrift og fylgja henni ritningartextar og hugleiðiðngar fyrir hvern dag vikunnar. Á Bænavikunni fyrir einingu kristinna manna 2010 munum við hugleiða 24. kafla Lúkasarguðspjalls og veita spurningunum, sem þar koma fram sérstaka athygli: Spurningunum sem Jesús leggur fyrir postula sína og spurningunum sem þeir leggja fyrir hann. Hver og ein þessara spurninga leyfir okkur að varpa ljósi á það hvernig má á sérstakan hátt bera hinum upprisna vitni. Sérhver þeirra hvetur okkur til að hugsa um það hvernig sundrung kirknanna er og hvað við getum gert til að lagfæra stöðuna. Við erum nú þegar vitni en við þurfum að verða enn betri vitni. En hvernig?
Væri vitnisburður okkar um fagnaðarerindið um Jesúm Krist ekki betri ef við gætum borið þessum átta atriðum sameiginlegt vitni? |
|||||