Stjórnsýsla
* * * Skýrsluskil prestaFrá janúar 2010 hafa skil starfsskýrslna presta og messugjörðaskýrslna sóknarpresta verið rafræn í gegnum þjónustuvef kirkjunnar (https://innri.kirkjan.is). Skilin urðu þá mánaðarleg og formin breyttust frá því sem áður var. Árlegar skýrslur skilað á gamla forminu fullnægja því ekki óskum um veitt gögn. * * * Umsóknir í sjóði kirkjunnar vegna ársins 2012Athugið: Frestur til að sækja um vegna ársins 2012 er liðinn. Umsóknarform vegna ársins 2013 verða aðgengileg í byrjun næsta árs. Umsóknarform fyrir Jöfnunarsjóð sókna, Kirkjumálasjóð og Kynningar-, útgáfu og fræðslusjóð kirkjunnar er að finna á Þjónustuvef kirkjunnar (https://innri.kirkjan.is). Þjónandi prestar og sóknarnefndamenn hafa aðgang að þjónustuvefnum. Aðstoðarbeiðnir vegna aðgangs að vefnum má senda á thjonustuvefur@kirkjan.is. Aðrir sem hafa hug á að sækja um í sjóðina geta gert það í gegnum form.kirkjan.is. Þeir þurfa að senda beiðni um aðgangsheimild á ofangreint netfang, tilgreina þarf kennitölu og símanúmer viðkomandi. Umsóknarfrestur vegna ársins 2012 rennur út 15. júní 2011 og þá lokast fyrir umsóknir. Magnhildur Sigurbjörnsdóttir (Magnhildur.Sigurbjornsdottir@kirkjan.is) veitir upplýsingar um umsóknir í sjóði kirkjunnar.
* * * Skimun starfsmannaSamþykki fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá vegna starfs eða umsóknar um starf hjá þjóðkirkjunni (pdf-skjal). Athygli er vakin á því að skjalið var uppfært í byrjun desember í kjölfar breytinga sem kirkjuþing 2010 gerði á starfsreglum. Þeir sem höfðu skilað inn samþykki áður þurfa þó ekki að skila inn nýju samþykki.
* * * Ársreikningar sókna og kirkjugarðaEyðublöð fyrir ársreikninga sókna og prófastsdæma eru nú aðgengileg hér á vefnum: * * * Uppgjör sóknargjalda 2011Uppgjör sóknargjalda 2011 er að finna inni á vef Fjársýslu ríkisins. * * * Uppgjör vegna kirkjugarðagjaldaUpplýsingar er að finna á gardar.is/2011
|
![]() |
||||||||||||||