Biskup ÍslandsKarl Sigurbjörnsson er biskup Íslands. Biskup Íslands er æðsti embættismaður kirkjunnar. Hann hefur tilsjón með kristnihaldi, kenningu kirkjunnar og starfi hennar í landinu. Hann er forseti kirkjuráðs. Hann fylgir eftir reglum er kirkjuþing setur, samþykktum kirkjuþings og markaðri stefnu þess og prestastefnu og hefur ákvörðunarvald um einstök mál, nema þau heyri undir önnur stjórnvöld þjóðkirkjunnar samkvæmt lögum um stöðu, stjórn og starfshætti kirkjunnar. Biskup hefur skrifstofu í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík. Viðtal við biskup er hægt að panta hjá Hönnu Sampsted, fulltrúa, í síma 528 4000. Hægt er að sjá yfirlit yfir helstu verkefni biskups hér á vefnum.
MyndirPrédikanir og pistlarÁ trú.is er að finna fjölda prédikana og pistla biskups
|
|||||