FræðslusviðVerksviðStefnumörkun í fræðslumálum Þjóðkirkjunnar, bera ábyrgð á þeirri Fræðslustefnu sem Kirkjuþing samþykkti 2005 og hrinda henni í framkvæmd eins og unnt er. Fastir þættir: Barnastarf; umsjón með efnisgerð, leiðtoganámskeið, samskipti og stuðningur við leikskóla og grunnskóla, foreldramorgnar. Fermingarstarf; efnisgerð, fyrirlestrar. Unglingastarf; æskulýðsdagurinn, leiðtoganámskeið, stuðningur og heimsóknir í sóknir landsins, fullorðinsfræðsla, ekki síst ungt fullorðið fólk. Þá er á ábyrgð fræðslusviðs að bera ábyrgð á vímuvarnarstefnu þjóðkirkjunnar, samstarf við nefnd um áratug gegn ofbeldi, svo og jafnréttismál og málefni kvenna. Einnig að annast samstarf við fræðslustofnanir þjóðkirkjunnar og kirkjumiðstöðvar um fræðslu og þjónustu gagnvart starfsmönnum kirkjunnar. Starfsmenn
Helstu verkefniFræðsla fyrir foreldra skírnarbarna, sunnudagaskóla- og fermingarbarna, sjálfsstyrking fyrir unglinga, fræðsla fyrir framhaldsskólanemendur og ungt fólk á aldrinum 20- 35 ára. Tenglarhttp://www.kirkjan.is/biskupsstofa/?stefnumal/fraedslustefna |
|||||