Guðfræði- og þjóðmálasvið

Frá stofnfundi samráðsvettvangs trúfélaga

Verksvið

Hlutverk þjóðkirkjunnar er að vera biðjandi, boðandi og þjónandi kirkja. Í því felst m.a. að kirkjan leitast við að bregðast við spurningum og straumum samtíðar sinnar með guðfræðilegri samræðu á vettvangi þjóðlífsins. Kirkjan vill stuðla að guðfræði sem virðir deiglumál samfélags og reynir að bregðast við þeim. Gjarnan er rætt um kontextual guðfræði í því sambandi.

Kirkjan leitast við að vera gagnrýnin og einnig spámannleg rödd í samfélaginu. Verksviði guðfræði og þjóðmála er ætlað að stuðla að því hlutverki kristinnar kirkju.

Viðfangsefni varða m.a. stefnumál kirkjunnar innan lands og utan; kirkjulega hugsun um gildi og spurningar samfélagsins; rannsóknir á trúarlegum spurningum, gildum og lífsskoðunum sem efst eru á baugi; skuldbindingar kirkjunnar um mannréttindi, þ.m.t. réttindi kvenna; málþing og samræður um stöðu gilda, trúar og kirkju; fréttaflutning og miðlun efnis, sem varðar málaflokkinn, m.a. á vef kirkjunnar.

Starfsmenn

  • Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, addasteina@biskup.is, verkefnisstjóri stefnumótunar og samskipta við önnur trúarbrögð
  • Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, irma@biskup.is, (10% starf)

Helstu verkefni

Kirkjufræði og safnaðarstarf; siðfræðileg álitamál og þjóðmál; mannréttindi, jafnrétti; önnur trúarbrögð