Helgihalds- og kirkjutónlistarsvið

Sungið í Hallgrímskirkju

Helgihalds – og kirkjutónlistarsvið á Biskupsstofu annast  málefni guðsþjónustunnar, helgihaldsins og kirkjutónlistarinnar  innan þjóðkirkjunnar í umboði biskups Íslands. Starfsmenn sviðsins eru ráðgjafar biskups í helgisiða- og kirkjutónlistarmálum, veita prestum, organistum,kórstjórum  og öðru starfsfólki kirkjunnar ráðgjöf í tilfallandi vanda í þeim efnum og leiða starf til endurskoðunar og nýsköpunar helgisiða og kirkjusöngs. Þeir framfylgja þeim reglum og samþykktum sem samþykkt eru um þessi málefni  af kirkjuyfirvöldum og starfa samkvæmt þeim.

Starfsmenn

Kristján Valur Ingólfsson, kristjan.valur.ingolfsson@kirkjan.is er verkefnisstjóri á helgisiðasviði, Hörður Áskelsson,hordur.askelsson@kirkjan.is er söngmálastjóri og leiðir starf  á kirkjutónlistarsviði. Báðir eru í hlutastarfi. Kristján Valur er stundakennari  við guðfræðideild og prestur á Þingvöllum, Hörður gegnir stöðu organista og kantors við Hallgrímskirkju og kennir við Tónskóla þjóðkirkjunnar. Aðstoðarmaður söngmálstjóra  er Arngerður María Árnadóttir, arngerdur.arnadottir@kirkjan.is.

Starfsmenn sviðsins eru í nánu samstarfi við Helgisiðanefnd, Handbókarnefnd, Sálmabókarnefnd, Orgelnefnd, Bygginga- og listanefnd, Stjórn tónmenntasjóðs kirkjunnar og Stjórn Tónskóla þjóðkirkjunnar.

Í Helgisiðanefnd sitja Kristján Valur Ingólfsson, Kristín Þórunn Tómasdóttir og Einar Sigurbjörnsson. Sálmabókarnefnd skipa Einar Sigurbjörnsson, Hörður Áskelsson, Margrét Eggertsdóttir, Hjörtur Pálsson, Jón Helgi Þórarinsson, og Lena Rós Matthíasdóttir. Handbókarnefnd skipa Kristján Valur Ingólfsson, Jóhanna I Sigmarsdóttir, Þorvaldur Karl Helgason, Gunnlaugur Garðarsson, Arna Ýrr Sigurðardóttir, og Guðni Már Harðarson. Kristín Þórunn Tómasdóttir er ritari beggja nefndanna. Í Bygginga- og listanefnd sitja Jóhannes Ingibjartsson, formaður, Guðrún Jónsdóttir, arkitekt, og Kristján Valur Ingólfsson, í Orgelnefnd sitja Hörður Áskelsson, Björn Steinar Sólbergsson og Lenka Mátéová. Í stjórn Tónskóla þjóðkirkjunnar sitja Jón Helgi Þórarinsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, og Guðný Einarsdóttir. Söngmálastjóri, Hörður Áskelsson, og skólastjórinn Björn Steinar Sólbergsson sitja fundi stjórnar Tónskólans starfa sinna vegna.

Helstu verkefni

  • Endurskoðun Sálmabókar og kóralbókar þjóðkirkjunnar í samvinnu við Sálmabókarnefnd.
  • Endurskoðun Handbókar þjóðkirkjunnar í samvinnu við Handbókarnefnd. Þátttaka í efnisvali og undbúningi útgáfu söngbóka fyrir barnastarf og blandaða kóra.
  • Tillögur um nýjungar í guðsþjónustulífi kirkjunnar.

Tenglar