Samkirkjumál

Verksvið

Þjóðkirkjan tekur þátt í samkirkjulegu (ekumenisku) starfi bæði erlendis og á Íslandi. Þjóðkirkjan er aðili að ýmsum heildarsamtökum kirkna og kirknstofnunum. Þjóðkirkjan er stofnaðili Lútherska heimssambandsins (1947); Alkirkjuráðsins (1948); Norræna samkirkjuráðsins (1949); Kirknasambands Evrópu (1964) og Porvoo-kirknasambandsins (1995).

Samkirkjunefnd

Biskup Íslands er yfirmaður samkirkjumála þjóðkirkjunnar. Honum til stuðnings er Samkirkjunefnd þjóðkirkjunnar, sem starfar samkvæmt reglum sem biskup setur.

Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga

Þjóðkirkjan er aðili að Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga, sem er samvinnuvettvangur kristinna kirkna og kirkjulegra hreyfinga á Íslandi. Aðild að þessari nefnd eiga: Aðventistar, Fríkirkjan Vegurinn, Hvítasunnukirkjan, Hjálpræðisherinn, Íslenska Kristkirkjan, Kaþólska kirkjan, Óháði söfnuðurinn og Þjóðkirkjan. Fulltrúar þjóðkirkjunnar eru: María Ágústsdóttir og Steinunn A. Björnsdóttir.

Upplýsingar um samkirkjumál

Á annál samkirkjumála má finna upplýsingar og skýrslur um samkirkjulegt starf.

Porvoo-samþykktin

Hægt er að lesa Porvoo-samþykktina hér á vefnum.

Charta Oecumenica

Hægt er að lesa Charta oecumenica í íslenskri þýðingu á vefnum

Starfsmenn

Steinunn A. Björnsdóttir, steinunn.bjornsdottir@biskup.is, verkefnisstjóri

Helstu verkefni

Samskipti við erlendar kirkjur, þátttaka í samkirkjulegu starfi.

Vísanir