UpplýsingatæknisviðÁ Biskupsstofu er starfrækt upplýsingatæknisvið (sem heyrir undir kirkjuráð) sem veitir stoðþjónustu á eftirfarandi starfsstöðvum:
Þjónustan er mismunandi eftir stofnunum en um getur verið að ræða afnot af búnaði, nettengingum, símkerfi, afritun, vírusvarnir, vefhýsingu, notendaðstoð svo og aðra aðstoð og ráðgjöf. Verkefnisstjóri er Örvar Kárason (Orvar.Karason@kirkjan.is, 528 4049). TölvupósturStarfandi prestar fá úthlutað pósthólfi með tilheyrandi @kirkjan.is netfangi. Nafnaregla netfanga er fullt nafn viðkomandi án íslenskra sérstafa þar sem punktur skilur að orð, dæmi Orn.Thordarson@kirkjan.is.
Hægt er að fá úthlutað netfangi með nafni sóknarinnar eða kirkjunnar sem er þá annaðhvort nýtt af kirkjuverðinum eða áframsent á netfang prestsins. Einnig er hægt að sækja um netfang fyrir annað starfsfólk sem sinnir kirkjustarfi og er í meira en 75% starfi. Kostnaður vegna þess pósthólfs yrði greiddur af viðkomandi sókn. Beiðni um netfangið þarf að koma frá sóknarprestinum. Umsóknir um netföng sendist á kerfisstjori@kirkjan.is. Ef aðgangsorð glatast er hægt að biðja um nýtt í síma 528 4049. Meðferð tölvubréfÁ vefslóðinni http://kirkjan.is/tolvubref/ er síða með upplýsingum meðferð tölvubréfa sem berast fyrir mistök. Vísa má á hana í fæti tölvubréfa. Sókna- og stofnanavefirSóknum, prestaköllum, prófastsdæmum og stofnunum kirkjunnar stendur til boða vefir með stöðluðu útliti og einfaldri vefumsjón. Um mitt ár 2010 voru 53 sóknarvefur og 15 stofnanavefir í umsjá sviðsins. Fyrirspurnir um uppsetningu nýrra vefja skal senda til kerfisstjori@kirkjan.is. Þjónustuvefur kirkjunnarVefslóð: innri.kirkjan.is Allir starfandi prestar, djáknar og sóknarnefndarmenn hafa aðgang að vefnum. Annað starfsfólk kirkjunnar geta sótt um aðgang fyrir sig með því að senda beiðni þess efnis á thjonustuvefur@kirkjan.is. Skráðir notendur með uppgefið rétt netfang geta sótt sér ný aðgangsorð hafi það gamla glatast. Aðstoðarbeiðnir sendist á thjonustuvefur@kirkjan.is |
|||||