Almennt um sjóðiKirkjuráð fer með yfirumsjón fjármála kirkjunnar og er jafnframt sjóðsstjórn Kristnisjóðs, Jöfnunarsjóðs sókna, Kirkjumálasjóðs og Kynningar-, fræðslu- og útgáfusjóðs kirkjunnar. Líknar -og viðlagasjóður kirkjunnar lýtur sérstakri stjórn (biskup Íslands eða fulltrúi hans, stjórn Hjálparstarfs kirkjunnar tilnefnir einn og prestastefna kýs einn). Í sjóðsstjórn Kirkjuráðs felst að gera árlegar fjárhagsáætlanir fyrir sjóðina, leggja fyrir kirkjuþing fjárhagsáætlanir og endurskoðaða ársreikninga, hafa eftirlit með þeim og fylgja eftir ákvörðunum, sinna þeim rekstri og skyldum sem lög mæla fyrir um, úthluta úr þeim skv. þeim reglum sem um sjóðina gilda, sjá um að bókhald þeirra sé fært, greiðslur inntar af hendi og upplýsingar veittar um þá. Ríkisendurskoðun annast endurskoðun sjóðanna. Árleg fjárstjórn sjóðanna er í meginatriðum sem hér segir: Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár er gerð í septembermánuði og um hana fjallað af kirkjuráði og áætlunin lögð fyrir kirkjuþing í október. Kirkjumálasjóður Kristnisjóður Kynningar-, fræðslu- og útgáfusjóður kirkjunnar Líknar - og viðlagasjóður kirkjunnar Umsóknir |
|||||