KirkjuráðNúverandi kirkjuráð var kjörið á kirkjuþingi 2010 og er þannig skipað: Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands Varamenn eru: Kirkjuráð fer með framkvæmdarvald í málefnum þjóðkirkjunnar. Nánar tiltekið fer kirkjuráð með framkvæmd sameiginlegra málefna þjóðkirkjunnar, þar á meðal verkefna sem lög og stjórnvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess m.a. af hálfu kirkjuþings, Prestastefnu, samtökum leikmanna, Alþingis og ráðherra að því leyti sem það er ekki falið biskupi Íslands eða öðrum stofnunum kirkjunnar. Helstu viðfangsefni ráðsins eru:
Staða í stjórnkerfi kirkjunnarKirkjuráð starfar á grundvelli laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, auk fyrirmæla í öðrum lögum. Þá starfar ráðið einnig samkvæmt starfsreglum settum af kirkjuþingi. Kirkjuráð er kosið af kirkjuþingi og heyrir undir þingið Kirkjuráð hefur tiltölulega sjálfstæða stöðu í stjórnkerfi kirkjunnar og telst til æðstu framkvæmdarvaldshafa þar, með kirkjuþingi, biskupi Íslands og dóms- og kirkjumálaráðherra. Undir kirkjuráð heyra kirkjustaðir og ýmsar stofnanir kirkjunnar, auk þess sem ráðið tekur þátt í samstarfi við embætti biskups Íslands og fleiri aðila og veitir fé til margvíslegra verkefna á sviði kirkjumála. Ráðið hefur sett sér skriflegar reglur um fundi sína. Kirkjuráð gefur kirkjuþingi árlega skýrslu um störf sín á milli þinga og eru skýrslurnar birtar í Gerðum kirkjuþings, sem eru aðgengilegar hér á vefnum frá 1998. Enn fremur er birt árlega skýrsla um störf kirkjuráðs í Árbók kirkjunnar. Lög og reglur um kirkjuráðRéttarheimildir um kirkjuráð (og þjóðkirkjuna almennt) eru aðgengilegar undir liðnum Lög og reglur hér á vefnum. Um hluverk og stöðu kirkjuráðs þjóðkirkjunnar er mælt fyrir í lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. Enn fremur eru fyrirmæli í einstökum sérlögum og reglugerðum á sviði kirkjumála, sem hér greinir: lög um heimild handa ríkisstjórninni til þess að afhenda þjóðkirkju Íslands Skálholtsstað nr. 32/1963 lög um Kristnisjóð o.fl. nr. 35/1970 lög um samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar nr. 12/1982 lög um sóknargjöld o.fl. nr. 91/1987 og reglugerð um jöfnunarsjóð sókna nr. 206/1991, lög um Skálholtsskóla nr. 22/1993, lög um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36/1993 lög um kirkjumálasjóð nr. 138/1993. Þá er mælt fyrir um kirkjuráð í starfsreglum kirkjuþings um kirkjuráð nr. 817/2000 og ýmsum öðrum starfsreglum kirkjuþings. Heiti kirkjuráðs á erlendum tungumálumKirkjuráð hefur ákveðið að heiti ráðsins á nokkrum erlendum tungumálum skuli vera sem hér segir: Á dönsku: Det islandske kirkeråd á þýsku: Kirchenrat der isländischen Kirche á ensku: Executive Council of The Church of Iceland á latínu: Consistorium Eccleciae Islandiae, |
|||||