Fasteignasvið Biskupsstofu

 

Fasteignasvið sinnir umsýslu með fasteignir kirkjumálasjóðs undir yfirstjórn kirkjuráðs og fasteignanefndar þjóðkirkjunnar. 

Fasteignirnar eru prestsbústaðir í þéttbýli, prestssetursjarðir og aðrar jarðir, aflögð prestssetur, skrifstofu,- verslunar- og þjónustuhúsnæði og íbúðarhúsnæði. Meginviðfangsefni sviðsins eru leiga og útleiga fasteignanna, umsjón viðhaldsframkvæmda og margvísleg hagsmuna- og réttindagæsla. Þá er sóknum veitt ráðgjöf vegna viðhalds kirkjubygginga og byggingarframkvæmda.

Sviðsstjóri fasteignasviðs er Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, lögfræðingur. Hún sinnir daglegri yfirstjórn fasteignasviðs, auk þess að sinna margvíslegri stjórnsýslu og hagsmunagæslu vegna fasteignanna. Hún hefur einnig með höndum leigumálefni, tryggingar, stjórnsýslu  og hagsmunagæslu. Á fasteignasviði starfar jafnframt Kristín Mjöll Kristinsdóttir, innanhússarkitekt, sem hefur umsjón með viðhaldsframkvæmdum innanhúss.

Í fasteignanefnd þjóðkirkjunnar sitja kirkjuþingsfulltrúarnir Bjarni Kr. Grímsson, sem er formaður; sr. Svavar Stefánsson, Reykjavík og Margrét Jónsdóttir, Syðra-Velli. Nefndin er skipuð til fjögurra ára. Varamaður formanns er Inga Rún Ólafsdóttir, kirkjuþingsfulltrúi, Reykjavík. Aðrir varamenn eru Margrét Björnsdóttir, kirkjuþingsfulltrúi, Kópavogi og Egill Heiðar Gíslason, kirkjuþingsfulltrúi, Reykjavík.