Skipan KirkjuráðsForseti kirkjuráðs er biskup Íslands. Kirkjuráð er auk þess skipað fjórum mönnum kjörnum af kirkjuþingi til fjögurra ára í senn, tveimur leikmönnum og tveimur prestum auk varamanna. Kirkjuþing 2010 kaus kirkjuráð. Næst verður kosið á kirkjuþingi 2014. Forseti sr. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands Fyrir guðfræðinga:
Fyrir leikmenn:
Varamenn Fyrir guðfræðinga:
Fyrir leikmenn:
Framkvæmdastjóri kirkjuráðs Framkvæmdastjóri kirkjuráðs hefur það hlutverk með höndum að undirbúa fundi kirkjuráðs, fylgja eftir samþykktum ráðsins, annast samskipti við stofnanir og önnur kirkjuleg stjórnvöld, sinna stjórnsýslu ráðsins og öðrum verkefnum sem honum eru falin af ráðinu hverju sinni. Framkvæmdastjóri starfar á grundvelli sérstaks erindisbréfs sem ráðið hefur gefið út. Framkvæmdastjóri kirkjuráðs er Guðmundur Þór Guðmundsson, lögfræðingur. Starfshópar kirkjuráðs Kirkjuráð hefur þrjá starfshópa sér til ráðgjafar og leiðbeiningar við úrlausnir mála. Í hverjum hópi er einn eða tveir kirkjuráðsmenn, formaður samsvarandi þingnefndar kirkjuþings og einn tilnefndur af biskupi Íslands. Fjármálahópur kirkjuráðs sem tengist fjárhagsnefnd kirkjuþings er skipaður kirkjuráðsfulltrúunum sr. Gísla Gunnarssyni, sr. Gunnlaugi Stefánssyni, Svönu Helen Björnsdóttur, Bjarna Kr. Grímssyni, formanni fjárhagsnefndar kirkjuþings og fulltrúi biskups Íslands er fjármálastjóri Biskupsstofu, Sigríður Dögg Geirsdóttir. Kirkjustarfshópur kirkjuráðs sem tengist allsherjarnefnd kirkjuþings er skipaður kirkjuráðsfulltrúunum, sr. Elínborgu Gísladóttur, varaformanni allsherjarnefndar kirkjuþings, Katrínu Ásgrímsdóttur og fulltrúi biskups Íslands er biskupsritari, sr. Þorvaldur Karl Helgason. Lagahópur Kirkjuráðs, sem tengist löggjafarnefnd kirkjuþings er skipaður kirkjuráðsfulltrúunum Margréti Björnsdóttur, formanni löggjafarnefndar kirkjuþings, Ásbirni Jónssyni og fulltrúi biskups Íslands er skrifstofustjóri Biskupsstofu, Ragnhildur Benediktsdóttir. |
|||||