1. gr. Biskup Íslands fer með samkirkjuleg mál fyrir hönd Þjóðkirkjunnar. Biskupi til stuðnings er Samkirkjunefnd Þjóðkirkjunnar sem hann kallar saman með skipunarbréfi.
2. gr. Hlutverk nefndarinnar er hafa yfirsýn og vera ráðgefandi um samskipti og tengsl Þjóðkirkjunnar við aðrar kirkjur og kristin trúfélög bæði á Íslandi og erlendis. Þar með er talin þátttaka Þjóðkirkjunnar í samkirkjulegum stofnunum.
3. gr. Samkirkjunefnd er skipað fimm fulltrúum og jafnmörgum til vara. Kirkjuþing kýs tvo, Hjálparstarf kirkjunnar tilnefnir einn og Biskup Íslands skipar tvo án tilnefningar og skal annar vera formaður en hinn sitja í Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á Íslandi og er hann jafnframt varaformaður. Nefndin skiptir að öðru leyti með sér verkum. Skipunartími er fjögur ár frá 1. júlí árið eftir kjör til Kirkjuþings.
4. gr. Samkirkjunefnd fundar tvisvar á ári og oftar ef þurfa þykir. Nefndin gerir biskupi reglulega grein fyrir starfi sínu og skilar árlega skýrslu til biskups, sem hann leggur fyrir Kirkjuþing og Kirkjuráð. Biskup leggur nefndinni til ritara, aðstöðu og rekstrarfé.
5. gr. Framkvæmdanefnd Samkirkjunefndar mynda formaður Samkirkjunefndar og tveir nefndarmenn, sem Samkirkjunefnd velur. Nefndin sér um mál samkirkjunefndar milli funda, undirbýr fundi og fylgir fram samþykktum gagnvart biskupi og þeim sem mál varða.
6. gr. Fulltrúar íslensku Þjóðkirkjunnar í erlendum kirknasamtökum og stofnunum, sem Þjóðkirkjan á formlega aðild að, hafa rétt til fundarsetu og tillögurétt á fundum nefndarinnar en ekki atkvæðisrétt.
7. gr. Samkirkjunefnd gerir tillögur til biskups um fulltrúa íslensku Þjóðkirkjunnar í samkirkjulegum nefndum, ráðum og stofnunum, sem Þjóðkirkjan er aðili eða ákveðið er að starfa með. Skulu fulltrúar íslensku kirkjunnar skila skýrslum um starf sitt og stofnana til nefndarinnar á ársfundi hennar sem haldin skal á fyrsta ársfjórðungi hvers árs.
8. gr. Starfsreglur þessar sem settar eru með heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 öðlast gildi 1. desember 2005.
Ákvæði til bráðabirgða
Skipa skal samkirkjunefnd samkvæmt ákvæðum starfsreglna þessara fyrir 1. desember 2005, er starfi til 30. júní 2007.