Starfsreglur um vígslubiskupa nr. 968/20061. gr. Biskupsdæmi Íslands skiptist í tvö vígslubiskupsumdæmi, Skálholtsumdæmi og Hólaumdæmi. [Umdæmi vígslubiskups í Skálholti nær yfir eftirtalin prófastsdæmi: Umdæmi vígslubiskups á Hólum nær yfir eftirtalin prófastsdæmi: 2. gr. Vígslubiskup starfar á grundvelli laga um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. Í umboði biskups Íslands og eftir þeirri kirkjulegu skipan sem segir í lögum, reglugerðum og starfsreglum veitir vígslubiskup andlega leiðsögn og tilsjón innan kirkjunnar í umdæmi sínu, eflir kirkjulíf, vísiterar og annast sáttaumleitanir. 3. gr. Vígslubiskup sá, sem eldri er að biskupsvígslu, gegnir störfum biskups Íslands í forföllum samkvæmt 15. gr. laga nr. 78/1997. 4. gr. Vígslubiskupi ber að starfrækja embætti sitt á grundvelli árlegrar fjárhagsáætlunar sem Kirkjuráð samþykkir. 5. gr. Vígslubiskupar bera ábyrgð á uppbyggingu biskupsstólanna eftir því umboði sem Kirkjuráð veitir. Þeir eru Kirkjuráði til stuðnings og samráðs í málefnum biskupsstólanna svo og öðrum kirkjulegum stjórnvöldum og koma fram í nafni staðanna og umdæmanna eftir því sem við á. Þeir bera ábyrgð á helgihaldi dómkirkna sinna í samráði við viðkomandi sóknarprest. 6. gr. Vígslubiskup á sæti í kenningarnefnd, sbr. 14. gr. laga nr. 78/1997 og starfsreglur um kenningarnefnd. Vígslubiskup situr biskupafund sem biskup Íslands boðar til, sbr. 19. gr. laga 78/1997 og starfsreglur um biskupafund. Vígslubiskup situr prestastefnu Íslands. Vígslubiskup situr prófastafund, sbr. starfsreglur um prófasta. Vígslubiskup sækir héraðsfundi í umdæminu eftir því sem við verður komið. 7. gr. Vígslubiskup skal annast sáttaumleitanir í umdæmi sínu þegar embættismönnum, trúnaðarmönnum eða starfsmönnum kirkjunnar, launuðum jafnt og ólaunuðum, vígðum jafnt og leikum, hefur ekki tekist að jafna ágreining sín á milli og sættir hafa ekki tekist í meðförum prófasts eða hann sagt sig frá málinu. Vígslubiskup skal ljúka sáttaumleitan sinni innan tveggja vikna að jafnaði, enda sé mál hvorki á hendi annarra kirkjulegra aðila á þeim tíma né til meðferðar fyrir dómsstólum. Vígslubiskupi er heimilt að kalla til aðstoðar fagfólk á sviði sem ágreiningsmál varðar. Vígslubiskup skilar biskupi Íslands skriflegu áliti ef sættir takast ekki. 8. gr. Vígslubiskup veitir úrlausn í málum sem prófastar vísar til hans. [9. gr... ] 1) [10. gr... ] 1) 11. gr. Vígslubiskup er biskupi Íslands til aðstoðar um kirkjuleg málefni. Hann annast biskupsverk að ósk biskups Íslands og í umboði hans, svo sem að vígja presta, djákna, kirkjur og kapellur. Hann hefur í umboði biskups Íslands tilsjón með að stefnumörkun kirkjunnar sé framfylgt hvað varðar helgihald, boðun, fræðslu og kærleiksþjónustu kirkjunnar í umdæmi sínu. Vígslubiskup hefur tilsjón með starfsmannahaldi einkum hvað varðar handleiðslu, símenntun og sálgæslu presta og starfsmanna kirkjunnar í umdæminu og beitir sér í þeim efnum ef tilefni er til. 12. gr. Vígslubiskup vísiterar prestaköll og söfnuði í umdæmi sínu eftir áætlun biskupafundar. Vísitasía vígslubiskups beinist einkum að innri þáttum kirkjulífs, hinni vígðu þjónustu, helgihaldi, boðun, sálgæslu og safnaðarstarfi. 13. gr. Starfsreglur þessar, sem settar eru á grundvelli 15. gr.,16. gr., 18. gr. 19. gr. og 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi 1. janúar 2007. Jafnframt falla brott starfsreglur um vígslubiskupa nr. 820/2000 frá sama tíma. |
|||||