Fagráð um meðferð kynferðisbrotaEf þú vilt leggja fram kvörtun vegna kynferðisbrotsEf þú vilt leggja fram kvörtun vegna kynferðisbrots /áreitni af hálfu starfsmanns þjóðkirkjunnar skaltu setja þig í samband við fulltrúa í fagráði um meðferð kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar. Fagráð virkjar talsmann sem á fund með þér (meintum þolanda) og leiðbeinir um framhald mála í samvinnu við Fagráð. Ef mál varðar barn skal því tafarlaust vísað til barnaverndarnefndar og biskupi gert kunnugt um málið. Póst til fagráðsins má senda á netfangið kynferdisbrot@kirkjan.is. Hvað er kynferðisbrot?Kynferðislegt ofbeldi er misnotkun á annarri manneskju þar sem gerandinn beitir eða hótar að beita ofbeldi eða þvingar þolanda á annan hátt kynferðislega. Þessi misnotkun getur verið allt frá káfi, þukli og klúru orðbragði upp í fullframið nauðgunarbrot í skilningi refsilaga. Kynferðisleg áreitni er óvelkomin kynferðisleg hegðun sem skapar auðmýkjandi eða fjandsamlegar aðstæður til vinnu, náms eða félagslegrar samvinnu hvort sem áreitnin er líkamleg, orðbundin eða myndræn. Kynferðisleg áreitni felur í sér samskipti sem einkennast af misnotkun á valdi, styrkleika eða stöðu þar sem kynferði þolandans er í brennidepli. Það sem greinir slíka framkomu frá daðri, vinahótum og vinsamlegri stríðni er að hún er í óþökk þess sem fyrir henni verður, hún er ekki gagnkvæm og ekki á jafnréttisgrundvelli. (Úr 1. grein starfsreglna um meðferð kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar) Leiðbeiningar til prests eða þess sem hefur orðið kynferðisbrots áskynja innan þjóðkirkjunnar
Skipan fagráðsGunnar Rúnar Matthíasson sjúkrahúsprestur, formaður Varamenn: Halla Bachmann, lögfræðingur StarfsreglurStarfsreglur um meðferð kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar eru aðgengilegar hér á vefnum undir liðnum Lög og reglur. NánarBæklingurinn Kynferðisbrot í kirkju. Hvað ber að gera? (pdf-skjal) |
|||||