Þjóðmálanefnd

Þjóðmálanefnd í janúar 2011

Þjóðmálanefnd  þjóðkirkjunnar sem kosin var á síðasta kirkjuþingi hélt sinn fyrsta fund 10. janúar sl. og hyggst koma saman mánaðarlega hið minnsta.  Hlutverk Þjóðmálanefndar er að efla og hafa frumkvæði að opinberri umræðu um samfélagsmál út frá kristnum grunngildum og styrkja faglegan grunn fyrir þá umræðu. Þá er Þjóðmálanefnd kirkjunnar biskupi Íslands, kirkjuráði og kirkjuþingi til ráðgjafar um samfélagsmál og siðferðileg álitamál.

Þjóðmálanefnd átti sína uppsveiflu þegar Þórhallur heitinn Höskuldsson var formaður hennar á síðasta áratug síðustu aldar.  Hún hélt málþing um fjölskylduna, um atvinnuleysi og fleira slíkt, gaf síðan út fyrirlestrana með formála og leiðbeiningum.  Ég vann með Þórhalli og upplifði hvernig nefndin í raun og veru var drifin áfram af krafti hans og því að hann dreif okkur hina nefndarmennina með sér.  Það næst eftirmminnilegasta er fundaröðin sem síðasta nefnd undir forsæti Önnu Sigríðar Pálsdóttir stóð fyrir í Neskirkju og safnaðarheimili Dómkirkjunnar um hrunið.  Fyrirlestrarnir þaðan og útleggingar voru gefin út á netinu. 

Fulltrúar

Aðalmenn:

  • Baldur Kristjánsson formaður
  • Sigrún Óskarsdóttir varaformaður
  • Sólveig Anna Bóasdóttir
  • Svavar Alfreð Jónsson
  • Inga Rún Ólafsdóttir

Varamenn:

  • Ingileif Malmberg
  • Magnús Erlingsson
  • Margrét Ólöf Magnúsdóttir
  • Steindór R. Haraldsson 
  • Þorvaldur Víðisson

Ritari nefndarinnar er Irma Sjöfn Óskarsdóttir