I. Einkunnarorð
„Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ (Matt. 22.37-39)
II. Forsendur
Kristin trú byggir á þeirri forsendu að góður Guð gefi lífinu tilgang og sérhver einstaklingur sé dýrmætur sem sköpun Guðs.
Kristin kirkja metur gildi fjölskyldu og heimilis umfram flest annað í lífi manneskjunnar.
Kristin trú hefur ekki algildar reglur um fjölskyldulíf, en byggir á grunni fagnaðarerindis Jesú Krists.
Heilsteypt fjölskyldulíf hvílir fyrst og fremst á kærleika en jafnframt á réttlæti og öðrum siðgildum, svo sem virðingu og tryggð.
Kristin trú bendir á breiskleika mannsins og bresti sem ávallt koma fram í mannlegu samfélagi, í fjölskyldulífi og á heimilum.
Þjóðkirkjan lítur svo á:
- Að fjölskyldan hafi það hlutverk að leggja grunn að heilbrigði einstaklings til líkama og sálar, ábyrgri samfélagsþátttöku og mannúðlegu samfélagi.
- Að meðal hlutverka fjölskyldunnar sé að ala upp börn og koma þeim til manns, geta af sér nýja kynslóð, miðla menningu, gildismati og góðum siðum áfram til næstu kynslóðar.
- Að fjölskyldan sé mikilvægasta eining náinna tengsla þar sem manneskjan á að fá tækifæri til að þroskast og dafna, ekki síst börnin.
- Að fjölskyldan sé mikilvægasti vettvangur trúaruppeldis. Þar á að kenna börnum að tjá sig, elska og biðja, þiggja og veita.
- Að í fjölskyldunni sé einstaklingurinn viðurkenndur og elskaður jafnt í styrkleika sínum og veikleika.
- Að fjölskyldan einkennist af gagnkvæmum skuldbindingum fólks um varanlega umhyggju og kærleika.
- Að fjölskyldan sé grunneining samfélagsins og hvorugt þrífist án hins.
- Að fjölskyldunni beri fullur stuðningur samfélagsins til að gegna hlutverki sínu .
III. Markmið
Þjóðkirkjan vill:
- Vera bandamaður fjölskyldunnar, ekki síst barna og þeirra sem minna mega sín.
- Efla kærleika, réttlæti, tryggð, gagnkvæma virðingu og traust innan fjölskyldunnar.
- Styðja trúarlíf innan fjölskyldunnar.
- Stuðla að því að sérhver einstaklingur og fjölskylda finni til ábyrgðar á lífi annarra og samfélaginu öllu.
IV. Leiðir
Megináhersla verður lögð á eftirtalin verkefni:
- Samtöl við brúðhjón og pör um hjónaband, staðfesta samvist og fjölskyldulíf.
- Námskeið fyrir fólk í hjónabandi, staðfestri samvist eða sambúð.
- Skírnarviðtöl hjá presti.
- Foreldramorgnar.
- Barnastarf, sunnudagaskólastarf, með áherslu á uppeldi og fjölskylduhefðir.
- Átaksverkefnið “Verndum bernskuna”.
- Ávallt sé minnt á mikilvægi hvíldardagsins fyrir fjölskyldulíf.
- Fermingarfræðslu og samstarf við foreldra.
- Fullorðinsfræðslu eins og námskeið Leikmannaskólans.
- Sálgæslu hjá prestum og djáknum almennt í safnaðarstarfi og í sorg og áföllum.
- Viðtöl og ráðgjöf hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
- Hjálparstarf kirkjunnar – stuðningi við fjölskyldur í neyð.
- Útgáfu bóka og annars fræðsluefnis á vegum Skálholtsútgáfunnar.
- Útgáfu kynningarbæklings um þjónustu kirkjunnar við fjölskyldur.
- Starfsmannastefna og starfsmannahald kirkjunnar verði til skoðunar í ljósi þessarar stefnu.