Viðbragðaáætlun kirkjunnarInngangurViðbragðaáætlun kirkjunnar er ætlað að samræma viðbrögð kirkjunnar við stórslysum annars vegar og almannavarnarástandi hins vegar, enda er kirkjan hluti stærri heildar sem starfar náið saman í slíkum aðstæðum. Hópslysanefnd kirkjunnar hefur, samkvæmt samþykkt Kirkjuþings 2004, yfirumsjón með skipulagi á viðbrögðum kirkjunnar vegna stórslysa og þegar almannavarnarástand ríkir (sjá www.kirkjan.is/vidbrogd). Prófastsdæmi eitt eða fleiri er grunneining viðbragðaáætlunar kirkjunnar. Prófastar bera ábyrgð á gerð viðbragðaáætlunar hvers prófastsdæmis. Viðbragðaáætlun kirkjunnar og prófastsdæmanna skal haldið virkri með stöðugri endurskoðun í samræmi við reynsluna og með reglulegum æfingum. Viðbragðaáætlun kirkjunnar er gefin út og send á alla þá aðila sem hún tekur til, bæði innan kirkju svo og helstu samstarfsaðila, auk þess er hún aðgengileg á heimasíðu kirkjunnar (www.kirkjan.is/vidbrogd). Hlutverk hópslysanefndar kirkjunnara) Ábyrgð og hlutverkHópslysanefnd kirkjunnar er fastanefnd sem starfar í umboði Kirkjuráðs og biskups Íslands. Nefndin hefur yfirumsjón með skipulagi á viðbrögðum kirkjunnar vegna stórslysa og samhæfir aðgerðir hennar. Í nefndinni eiga sæti:
Hópslysanefnd er tengiliður kirkjunnar við stjórnvöld, s.s. almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Landlæknisembættið og Rauða kross Íslands. Hópslysanefnd ber ábyrgð á endurskoðun viðbragðaáætlunar kirkjunnar að aðgerðum loknum og því að halda áætluninni virkri milli aðgerða með reglubundnum æfingum. Í aðgerðum skulu nefndarmenn halda dagbók með tímaskráningu og verkefnum (sjá form á www.kirkjan.is/vidbrogd) m.a. til að auðvelda endurskoðun og mat á styrkleika og veikleika áætlunarinnar. Hópslysanefnd er til taks um ráðgjöf og stuðning við undirbúning og endurskipulagningu viðbragðaáætlunar prófastsdæmanna. b) Almannavarnarástand
c) Stórslys án almannavarnarástands
Hlutverk prófastsa) Undirbúningur og skipulagning
b) Almannavarnarástand
c) Stórslys án almannavarnarástands
Í aðgerðum skal prófastur halda dagbók með tímaskráningu og verkefnum (sjá form á www.kirkjan.is/vidbrogd) m.a. til að auðvelda endurskoðun og mat á styrkleika og veikleika áætlunarinnar. d) Að aðgerðum loknum
Samráðshópur áfallahjálpara) Hlutverk og skilgreiningSamráðshópur áfallahjálpar er virkjaður þegar almannavarnarástand ríkir. Í skipulagi almannavarna er gert ráð fyrir að hann sé skipaður:
Samráðshópurinn skipuleggur áfallahjálp á viðkomandi svæði, sér um að verkefni séu leyst og hefur samband og samráð við aðgerðarstjórn og fulltrúa hópslysanefndar kirkjunnar. Hópurinn hittist a.m.k. daglega á meðan aðgerðir standa yfir og vinnur að heildarskipulagi áfallahjálpar í samráði við almannavarnarnefndir á milli aðgerða (sbr. Áfallahjálp í skipulagi almannavarna – www.kirkjan.is/vidbrogd) b) Hlutverk fulltrúa kirkjunnar í samráðshópnumFulltrúi kirkjunnar í samráðshópi hefur fyrst og fremst stjórnunarlega ábyrgð og gætir þess að festast ekki í umönnun þolenda, heldur felur hana öðrum eftir því sem hægt er. Í aðgerðum skal fulltrúi í samráðshóp halda dagbók með tímaskráningu og verkefnum (sjá form á www.kirkjan.is/vidbrogd) m.a. til að auðvelda endurskoðun og mat á styrkleika og veikleika áætlunarinnar. Á meðan á aðgerðum stendur fylgist fulltrúi kirkjunnar í samráðshópi með því
Fulltrúi kirkjunnar í samráðshópnum upplýsir hópslysanefnd kirkjunnar um framvindu mála. Hlutverk prestsa) AlmannavarnarástandVið almannavarnarástand kallar Neyðarlínan út vakthafandi prest, eða prófast, samkvæmt viðbragðaáætlun prófastsdæmisins.
(og ræsir prófast eða fulltrúa hans samkvæmt viðbragðaáætlun prófastsdæmisins) og hefur samband við prest/presta sem næstir eru vettvangi. Aðrir prestar prófastsdæmisins eru boðaðir samkvæmt viðbragðaáætlun prófastsdæmisins.
Neyðarlínan boðar hópslysanefnd kirkjunnar Prestar fara í fjöldahjálparstöð/söfnunarsvæði aðstandenda/sjúkrahús (nánar á www.kirkjan.is/vidbrogd) eftir því sem við á og um er beðið eða eru í viðbragðsstöðu. Í fjöldahjálparstöð/söfnunarsvæði aðstandenda skulu prestar
Allir prestar prófastsdæmisins séu upplýstir um aðgerðir og gang þeirra sem fyrst, eftir því sem tök eru á.
Sérhver prestur prófastsdæmisins gætir þess að vera í sambandi við prófast eða fulltrúa kirkjunnar í samráðshópi áfallahjálpar
Prófastur hefur umboð til að senda presta milli prestakalla innan prófastsdæmis ef nauðsyn krefur (sbr. samþykkt Kirkjuþings 2004 á www.kirkjan.is/vidbrogd)
Einungis hópslysanefnd hefur umboð til að senda presta milli landsvæða í umfangsmiklum aðgerðum og er það gert í samráði við biskup, samráðshóp áfallahjálpar og aðgerðastjórn. b) Stórslys án almannavarnarástandsVið stórslys án almannavarnaástands vinnur prestur skv. viðbragðaáætlun prófastsdæmisins Viðbragðaáætlanir prófastsdæmaa) SkipulagÍ viðbragðaáætlun prófastsdæmanna er skipulag hvers prófastsdæmis (eða fleiri sem starfa saman) skilgreint.
b) Tengiliðir - símanúmerÍ heimabyggð: (fylgir viðbragðaáætlun hvers prófastsdæmis)
Sóknir / prestaköllMikilvægt að hver sókn eða prestakall útbúi sína viðbragðaáætlun og sé hún viðauki við viðbragðaáætlun prófastsdæmisins þar sem haft skal í huga að:
Hver sókn ræði um mögulegan kostnað við slíkar aðgerðir og hvernig skuli mæta honum. Mikilvæg símanúmer
ViðaukarSkýringar:Almannavarnarástand – skilgreining almannavarna Almannavarnarástand – fjöldahjálparstöðvar (handbók Rauða krossins) Almannavarnarástand – söfnunarsvæði aðstandenda (handbók Rauða krossins)
Fræðsluefni:Ályktun Kirkjuþings 2004 um skipulag viðbragðaáætlunar vegna stórslysa Samskiptaleiðir kirkjunnar – almannavarnarástand Samskiptaleiðir kirkjunnar – stórslys án almannavarnarástands Í vinnslu Áfallahjálp í skipulagi almannavarna
|
|||||