Almannavarnarástand
-
Í kjölfar slyss er sett upp aðstaða fyrir aðstandendur þar sem þeir geta safnast saman á meðan beðið er eftir upplýsingum um afdrif ástvina sem í slysinu lentu.
-
Þar fer fram skráning, upplýsingagjöf, fræðsla, huggun og stuðningur sem prestar, djáknar og Rauða kross fólk annast.
-
Unnið er að sameiningu aðstandenda og ástvina sem í slysinu lentu um leið og upplýsingar um afdrif og staðsetningu þeirra berast.
-
Fjöldahjálparstjóri Rauða kross deildar skipar stjórnanda sem stýrir starfsemi á söfnunarsvæði aðstandenda á meðan á aðgerðum stendur
Úr handbók Rauða kross Íslands.