Boðorð

Landfestar og himinljós - mynd: Sigurður Árni Þórðarson

Boðorðin tíu

Fyrsta boðorð
Þú skalt eigi aðra guði hafa.

Annað boðorð
Þú skalt eigi leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma.

Þriðja boðorð
Halda skaltu hvíldardaginn heilagan.

Fjórða boðorð
Heiðra skaltu föður þinn og móður.

Fimmta boðorð
Þú skalt eigi mann deyða.

Sjötta boðorð
Þú skalt eigi drýgja hór.

Sjöunda boðorð
Þú skalt eigi stela.

Áttunda boðorð
Þú skalt eigi bera ljúgvitni gegn náunga þínum.

Níunda boðorð
Þú skalt eigi girnast hús náunga þíns.

Tíunda boðorð
Þú skalt eigi girnast konu náunga þíns, þjón, þernu, fénað né nokkuð það sem náungi þinn á.

Þessi röð og uppsetning á boðorðunum tíu er sótt í Fræðin minni eftir Lúther. Þar er að finna skýringar við hvert boðorð fyrir sig.

Tvöfalda kærleiksboðorðið

„Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ (Matt. 22.37-39)

Gullna reglan

„Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.“ (Matt 7.12)