Aðfangadagur - 24. desember
Litur: Hvítur
Vers vikunnar:
„Og Orðið varð hold, hann bjó með oss,“ (Jóh 1.14)
Kollekta:
Eilífi Guð og faðir, þú, sem árlega vekur oss gleðiríka eftirvænting endurlausnar vorrar: Gef þú, að vér, sem með fögnuði heilsum syni þínum sem frelsara vorum, megum og líta hann óttalaust, þegar hann kemur sem dómari í dýrð sinni. Því að hann lifir og ríkir með þér í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Mík 5.1-3 En þú, Betlehem í Efrata,
Pistill:
Tít 2.11-14 Því að náð Guðs hefur opinberast til sáluhjálpar öllum mönnum. Hún kennir okkur að afneita óguðleik og veraldlegum girndum og lifa hóglátlega, réttvíslega og guðrækilega í heimi þessum, í eftirvæntingu okkar sælu vonar, að hinn mikli Guð og frelsari vor Jesús Kristur opinberist í dýrð sinni. Hann gaf sjálfan sig fyrir okkur til þess að hann leysti okkur frá öllu ranglæti og hreinsaði sjálfum sér til handa eignarlýð, kostgæfinn til góðra verka.
Guðspjall:
Lúk 2.1-14 En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.
Sálmur:
73 Í Betlehem er :,: barn oss fætt. :,: Það barn oss fæddi :,: fátæk mær. :,: Hann var í jötu :,: lagður lágt, :,: Hann vegsömuðu :,: vitringar, :,: Þeir boða frelsi' og :,: frið á jörð :,: Vér undir tökum :,: englasöng, :,: Vér fögnum komu :,: frelsarans, :,: Hvert fátækt hreysi :,: höll nú er, :,: Í myrkrum ljómar :,: lífsins sól. :,: Valdimar Briem Bæn dagsins:
Drottinn Guð, gjafari allra góðra hluta, og upphaf gleðinnar. Með fæðingu Jesúbarnsins sendir þú bjartan geisla inn í myrkur jarðar. Gef að þetta ljós lýsi einnig hjá okkur. Lát það geisla í öllu sem við gerum, svo að við megum tigna þig og tilbiðja að eilífu. Amen.
|
|||||