Boðunardagur Maríu - 25. mars - (5. sunnudagur í föstu (iudica))
Boðunardagur Maríu er 25. mars, en er oft haldinn hátíðlegur 5. sunnudag í föstu (iudica).
Litur: Hvítur. Dýrðarsöngur/lofgjörð eru sungin.
Vers vikunnar:
„En þegar fylling tímans kom sendi Guð son sinn, fæddan af konu, fæddan undir lögmáli -“ (Gal 4.4)
Kollekta:
Drottinn Guð, vér biðjum þig: Vitja vor í náð og gef, að vér sem samkvæmt boðun engilsins vitum, að eilífur sonur þinn fæddist af Maríu meyju, megum sakir krossferils hans fæðast til himneskrar dýrðar upprisu hans, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Mík 5.2-3 Því verður þjóðin yfirgefin
Pistill:
Opb 21.3-7 Og ég heyrði raust mikla frá hásætinu er sagði: „Sjá, tjaldbúð Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra. Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið.“
Guðspjall:
Lúk 1.26-38 En í sjötta mánuði sendi Guð Gabríel engil til borgar í Galíleu, sem heitir Nasaret, til meyjar er var föstnuð manni, sem Jósef hét, af ætt Davíðs en mærin hét María. Og engillinn kom inn til hennar og sagði: „Heil vert þú sem nýtur náðar Guðs! Drottinn er með þér.“ En María varð hrædd við þessi orð og hugleiddi hvað þessi kveðja ætti að merkja. Og engillinn sagði við hana: „Óttast þú eigi, María, því að þú hefur fundið náð hjá Guði. Þú munt þunguð verða og son ala og þú skalt láta hann heita JESÚ. Hann mun verða mikill og kallaður sonur Hins hæsta. Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs föður hans og hann mun ríkja yfir ætt Jakobs að eilífu og á ríki hans mun enginn endir verða.“ Þá sagði María við engilinn: „Hvernig má þetta verða þar eð ég hef ekki karlmanns kennt?“ Og engillinn sagði við hana: „Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur Hins hæsta mun yfirskyggja þig. Þess vegna verður barnið heilagt, sonur Guðs. Elísabet, frændkona þín, er einnig orðin þunguð að syni í elli sinni og þetta er sjötti mánuður hennar sem kölluð var óbyrja en Guði er enginn hlutur um megn.“ Þá sagði María: „Sjá, ég er ambátt Drottins. Verði mér eftir orðum þínum.“ Og engillinn fór burt frá henni.
Sálmur:
573 Nú gleðifregn oss flutt er ný Ein kyrrlát mær þá kveðju fær, Við mey þá engill mæla réð: Lát kraft þinn, Jesús, Jesús minn, Þitt himnaríki' í hjarta mér Valdimar Briem þýddi Bæn dagsins:
Eilífi Guð,
þú sem forðum sendir engil þinn til Maríu
til að boða henni
að fyrir hana skyldi þitt eilífa Orð
verða maður
til þess að við mættum frelsast.
Gef þú okkur eins og Maríu
að mega taka á móti náð þinni og kærleika
í auðmýkt og í trausti til þín
svo að veröldin öll megi þekkja þig
og frelsara sinn, Drottin Jesú Krist.
Við biðjum í hans nafni.
Amen.
|
|||||