4. sunnudagur í föstu - miðfasta (laetare)
Á þriðjudögum á föstu er lesið úr Jobsbók að morgni, en píslarsagan samkvæmt Markúsi að kveldi.
Vers vikunnar:
„Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr verður það áfram eitt. En ef það deyr ber það mikinn ávöxt.“ (Jóh 12.24)
Kollekta:
Almáttugi Guð, vér biðjum þig: Lát oss sem maklega gjöldum gjörða vorra, endurnærast af hugsvölun náðar þinnar. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
5Mós 8.2-3 Hafðu hugfast hvernig Drottinn, Guð þinn, leiddi þig alla leiðina þessi fjörutíu ár í eyðimörkinni. Hann gerði það til að beygja þig og reyna þig, til þess að komast að raun um hvað þú hafðir í huga, hvort þú hygðist halda boðorð hans. Hann auðmýkti þig með hungri en gaf þér síðan manna að eta sem hvorki þú né forfeður þínir þekktu. Hann vildi gera þér ljóst að maðurinn lifir ekki á einu saman brauði heldur hverju því sem fram gengur af munni Drottins.
Pistill:
Róm 5.1-5 Réttlætt af trú höfum við því frið við Guð sakir Drottins vors Jesú Krists. Hann hefur veitt okkur aðgang að þeirri náð sem við lifum í og við fögnum í voninni um dýrð Guðs. En ekki aðeins það: Við fögnum líka í þrengingum þar eð við vitum að þrengingin veitir þolgæði en þolgæði gerir mann fullreyndan og fullreyndur á vonina. Og vonin bregst okkur ekki. Því að kærleikur Guðs hefur streymt inn í hjörtu okkar með heilögum anda sem okkur er gefinn.
Guðspjall:
Jóh 6.1-15 Eftir þetta fór Jesús yfir um Galíleuvatn eða Tíberíasvatn. Mikill fjöldi manna fylgdi honum því þeir sáu þau tákn er hann gerði á sjúku fólki. Þá fór Jesús upp á fjallið og settist þar niður með lærisveinum sínum. Þetta var laust fyrir páskahátíð Gyðinga.
Sálmur:
340 Enn í trausti elsku þinnar, Eg þig tilbið, eg þín leita, Mitt af syndum særða hjarta Allar nægtir æðstu gæða Særða' og nakta sálu mína Þér ég fórna, þér nú gef ég, Páll Jónsson Bæn dagsins:
Gleðjast skulu þau öll í þér,
Drottinn Guð,
þau sem tilheyra þér.
Gef þú okkur saðningu
með brauði lífsins,
svo að við lifum í krafti sonar þíns
og mætum hvert öðru í kærleika.
Þess biðjum við í nafni Jesú Krists.
Amen.
|
|||||