5. sunnudagur í föstu (iudica)
Ef boðunar Maríu er minnst með sérstakri messu 25.mars þá eru lesnir textar 5.sd. í föstu. Litur er þá fjólublár og Dýrðarsöngur/lofgjörð eru ekki sungin.
Vers vikunnar:
„Ég helga mig fyrir þá svo að þeir séu einnig helgaðir í sannleika.“ (Jóh 17.19)
Kollekta:
Almáttugi Guð, vér biðjum þig. Lít í líkn til vor, barna þinna, og lát gæsku þína
leiða oss og vernda til lífs og sálar. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem
með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
4Mós 21.4b-9 En þolinmæði fólksins þraut á leiðinni og það tók að tala gegn Guði og Móse: „Hvers vegna leidduð þið okkur upp frá Egyptalandi til að deyja í eyðimörkinni? Hér er hvorki brauð né vatn og okkur býður við þessu léttmeti.“
Pistill:
Heb 9.11-15 En Kristur er kominn sem æðsti prestur þeirra gæða sem komin eru. Hann gekk inn í gegnum hina stærri og fullkomnari tjaldbúð sem ekki er með höndum gerð, það er að segja er ekki af þessari sköpun. Ekki fór hann með blóð hafra og kálfa heldur með eigið blóð inn í hið heilaga í eitt skipti fyrir öll og aflaði eilífrar lausnar. Blóð hafra og nauta og askan af kvígu, stráð á menn, er óhreinir hafa gerst, á að helga þá svo að þeir verði hreinir hið ytra. Hve miklu fremur mun þá blóð Krists, þegar hann hefur í krafti eilífs anda borið sjálfan sig fram fyrir Guð sem lýtalausa fórn, hreinsa samvisku okkar af dauðum verkum svo að við getum þjónað lifanda Guði.
Guðspjall:
Jóh 8.46-59 Hver yðar getur sannað á mig synd? Ef ég segi sannleikann, hví trúið þér mér ekki? Sá sem er af Guði heyrir Guðs orð. Þér heyrið ekki vegna þess að þér eruð ekki af Guði.“
Sálmur:
297 Ó, Herra Jesús, hjá oss ver, Þótt ill sé tíð og öldin spillt, Ó, Kristur, þína kirkju styð, Það náði, Guð, þín miskunn mild, Ei oss ber heiður, heldur þér, Þitt orð er sálar æðsta hnoss, Þitt heilagt orðið heims í nauð Melankton 1. v. - Selnecker Sb. 1886 - Helgi Hálfdánarson |
|||||