Sunnudagur í föstuinngang (quinquagesima)Vers vikunnar:
„Jesús tók þá tólf til sín og sagði við þá: „Nú förum við upp til Jerúsalem og mun allt það koma fram sem spámennirnir hafa skrifað um Mannssoninn.“ (Lúk 18.31)
Kollekta:
Vér biðjum þig, Drottinn: Heyr þú í mildi bænir vorar. Leys oss úr viðjum syndanna og varðveit oss gegn öllu illu. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Jes 52.13-15 Sjá, þjónn minn mun giftusamur verða,
Pistill:
1Pét 3.18-22 Kristur dó fyrir syndir í eitt skipti fyrir öll, réttlátur fyrir rangláta, til þess að geta leitt ykkur til Guðs. Hann var deyddur að líkamanum til en lifandi ger í anda. Þannig steig hann niður til andanna í varðhaldi og prédikaði fyrir þeim. Þeir höfðu óhlýðnast fyrrum, á dögum Nóa, þegar Guð sýndi biðlund og beið meðan örkin var í smíðum. Í henni frelsuðust fáeinar - það er átta - sálir í vatni. Þetta er fyrirmyndan skírnarinnar sem nú frelsar ykkur. Hún er ekki hreinsun óhreininda á líkamanum heldur bæn til Guðs um góða samvisku fyrir upprisu Jesú Krists sem steig upp til himna, situr Guði á hægri hönd, og englar, völd og kraftar eru undir hann lagðir.
Guðspjall:
Matt 3.13-17 Þá kom Jesús frá Galíleu að Jórdan til Jóhannesar að taka skírn hjá honum. Jóhannes vildi varna honum þess og sagði: „Mér er þörf að skírast af þér og þú kemur til mín!“
Sálmur:
251 Andi Guðs sveif áður fyrr Andi Guðs sveif annað sinn Andinn svífur enn sem fyrr Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Miskunnsami Guð,
þú sýndir öllum heimi kærleika þinn
og gjörðist hluttakandi í þjáningu heimsins
þegar sonur þinn
Drottinn Jesús Kristur
gaf sjálfan sig til dauða á krossi
Við biðjum þig:
Opna þú augu okkar
að við sjáum leyndardóminn bak við þjáningu hans og dauða.
Gef okkur kraft til að fylgja honum
í hlýðni og í kærleika
í þjónustunni við þau sem hungrar og þyrstir eftir réttlæti
og eftir lausn frá böli og þunga í sínu daglega lífi.
Fyrir þann sama Son þinn Jesús,
bróður okkar og frelsara.
Amen.
|
|||||