Gamlárskvöld - við aftansöng - 31. desember
Litur: Hvítur.
Kollekta:
Almáttugi, eilífi Guð, þú sem hefur verið oss athvarf á liðnu ári: Vér felum oss forsjón þinni á hinu komanda, svo að líf vort megi vegsama þig. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Hlj 3.21-26, 40-41 En þetta vil ég hugfesta Rannsökum breytni vora og prófum
Pistill:
Róm 8.31b-39 Ef Guð er með okkur hver er þá á móti okkur? Hann sem þyrmdi ekki sínum eigin syni heldur framseldi hann fyrir okkur öll, hvort mundi hann ekki líka gefa okkur allt með honum? Hver skyldi ásaka Guðs útvöldu? Það er Guð sem sýknar. Hver sakfellir? Kristur Jesús er sá sem dáinn er. Og meira en það: Hann er upprisinn, hann er við hægri hönd Guðs og hann biður fyrir okkur. Hver mun gera okkur viðskila við kærleika Krists? Mun þjáning geta það eða þrenging, ofsókn, hungur eða nekt, háski eða sverð? Það er eins og ritað er:
Guðspjall:
Lúk 13.6-9 Þá sagði Jesús þeim þessa dæmisögu: „Maður nokkur átti fíkjutré gróðursett í víngarði sínum. Hann kom og leitaði ávaxtar á því og fann ekki. Hann sagði þá við víngarðsmanninn: Í þrjú ár hef ég nú komið og leitað ávaxtar á fíkjutré þessu og ekki fundið. Högg það upp. Hví á það að vera engum til gagns? En hann svaraði honum: Herra, lát það standa enn þetta ár þar til ég hef grafið um það og borið að áburð. Má vera að það beri ávöxt síðan. Annars skaltu höggva það upp.“
Sálmur:
98 Nú árið er liðið í aldanna skaut En hvers er að minnast og hvað er það þá, Hún birtist á vori sem vermandi sól, Hún birtist og reynist sem blessunarlind Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Eilífi, almáttugi Guð og faðir, þú
sem leiðir þennan dag til lykta og
hylur hinn ókomna, og af náð þinni
gefur oss aðeins eitt andartak í senn.
Vér þökkum þér árið sem senn er
liðið, fyrir gleði þess og sorgir, allt
sem það gaf og tók. Fyrirgef oss vorar
skuldir, synd, afbrot, vanrækslu alla.
Lát engan líða vor vegna, heldur
opna fyrir oss leiðir til að bæta fyrir
það sem vér hörum gert rangt, eða
látið ógert. Leys oss frá gremju yfir
því sem að baki er og kvíða fyrir
komandi degi. Kenn oss að nota
rétt hverja stund sem þú gefur. í
þínar hendur felum vér árið liðna
og í trausti til handleiðslu þinnar
höldum vér inn um dyr hins nýja.
Vísa oss vegu þína, Drottinn, og leið
oss gegnum skammdegi lífsins, að
vér námum því marki sem þú hefur
sett jarðlífsgöngu vorri.
(O. Krook)
|
|||||