Hvítasunnudagur
Litur: Rauður.
Vers vikunnar:
„Ekki með valdi né krafti
heldur fyrir anda minn,
segir Drottinn allsherjar.“
(Sak 4.6b)
Kollekta:
Guð, sem hefur uppfrætt hjörtu trúaðra með ljósi þíns heilaga anda: Veit oss í sama
anda þinum að vita hið rétta og ávallt gleðjast af hans heilögu huggun. Fyrir son
þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda,
einn sannur Guð um
aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Jl 3.1-5 Síðar mun ég úthella anda mínum yfir alla menn.
Pistill:
Post 2.1-4 (-11) Þá er upp var runninn hvítasunnudagur voru allir saman komnir á einum stað. Varð þá skyndilega gnýr af himni, eins og óveður væri að skella á, og fyllti allt húsið þar sem þeir voru. Þeim birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á hvert og eitt þeirra. Allir fylltust heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla. (Í Jerúsalem dvöldust Gyðingar, guðræknir menn, frá öllum löndum undir himninum. Er þetta hljóð heyrðist kom allur hópurinn saman. Þeim brá mjög við því að hver og einn heyrði þá mæla á sína tungu. Menn voru frá sér af undrun og sögðu: „Eru þetta ekki allt Galíleumenn sem hér eru að tala? Hvernig má það vera að við, hvert og eitt, heyrum þá tala okkar eigið móðurmál? Við erum Partar, Medar og Elamítar, við erum frá Mesópótamíu, Júdeu, Kappadókíu, Pontus og Asíu, frá Frýgíu og Pamfýlíu, Egyptalandi og Líbýubyggðum við Kýrene og við sem hingað erum flutt frá Róm. Hér eru bæði Gyðingar og þeir sem tekið hafa trú Gyðinga, Kríteyingar og Arabar. Við heyrum þá tala á tungum okkar um stórmerki Guðs.“)
Guðspjall:
Jóh 14.23-31a Jesús svaraði: „Sá sem elskar mig varðveitir mitt orð og faðir minn mun elska hann. Til hans munum við koma og gera okkur bústað hjá honum. Sá sem elskar mig ekki varðveitir ekki mín orð. Orðið, sem þér heyrið, er ekki mitt heldur föðurins sem sendi mig.
Sálmur:
171 Skín á himni skír og fagur Fyrstu vinir sjálfs Guðs sonar Skyndilega heyrðist hvinur, Liðu tákn í lofti skæru, Allir fylltust anda hreinum, Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Huggunar-andi og eldur Guðs,
lífskraftur alls hins skapaða,
í þér mætum við Guði.
Þú safnar saman hinum villuráfandi,
birtir þeim sannleikann
og lætur þau skilja hvert annað.
Þökk sé þér fyrir það.
Amen.
|
|||||