Jónsmessa - 24. júníVers vikunnar:
„Þetta er vitnisburður Jóhannesar skírara: „Hann á að vaxa en ég að minnka.““ (Jóh 3.30)
Kollekta:
Almáttugi Guð, sem hefur gefið oss land, þar sem vér höfum frelsi til að játa þitt
heilaga nafn, tilbiðja þig og þjóna þér og leita ríkis þíns: Vér biðjum þig að kenna
oss að meta þessa gjöf, varðveita hana og ávaxta til eilífra heilla fyrir oss og
niðja vora. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í
einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Slm 92.2-3, 5, 9 Gott er að lofa Drottin, Þú gleður mig, Drottinn, með dáðum þínum, en þú, Drottinn, ert eilíflega upphafinn.
Pistill:
1Þess 5.5-7 Þið eruð öll börn ljóssins og börn dagsins. Við heyrum ekki nóttunni til eða myrkrinu. Sofum því ekki eins og aðrir heldur vökum og verum allsgáð. Því að þau sem sofa, sofa um nætur og þau sem drekka sig drukkin, drekka um nætur.
Guðspjall:
Lúk 1.57-67, 76-80 Nú kom sá tími, að Elísabet skyldi verða léttari, og ól hún son. Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu, hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni, og samfögnuðu henni. En Sakaría faðir hans fylltist heilögum anda og mælti af spámannlegri andagift: Og þú, sveinn, munt nefndur verða spámaður Hins hæsta
Sálmur:
Jónsmessuhymni Elífum Föður öll hans hjörð Hann öllum bauð að hafna synd, Hér með þá lýður hræddur var, Staðfastur þennan boðskap ber, Farisearnir fróman mann Ó, faðir þig áköllum vér Úr Hólabókinni 1589. Philipp Melanchthon Bæn dagsins:
Drottinn Guð, upphaf og skapari alls ljóss.
Þú sem valdir Jóhannes í móðurlífi til að bera vitni um ljósið
sem upplýsir öll börnin þín. Vér biðjum þig:
Gef oss náð til þess að helga líf vort því ljósi eins og Jóhannes,
svo að Kristur vaxi og verði máttugur í oss.
Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottinn vorn,
sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda
frá eilífð til eilífðar.
Amen.
|
|||||