Næstsíðasti sunnudagur kirkjuársins
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Því að öllum ber okkur að birtast fyrir dómstóli Krists“ (2Kor 5.10a)
Kollekta:
Miskunnsami, eilífi Guð: Vek þú oss nýjan vilja og þrá að lifa þér og veit oss til þess mátt kærleika þíns, að vér sakir náðar þinnar fáum borið ávöxt í öllu góðu og öðlast þitt eilífa líf. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Sef 3.14-17 Hrópaðu af gleði, Síonardóttir!
Pistill:
Heb 3.12-14 Gætið þess, bræður og systur, að hafa ekkert illt í hjarta og láta engar efasemdir bægja ykkur frá lifanda Guði. Uppörvið heldur hvert annað hvern dag á meðan enn heitir „í dag“, til þess að enginn forherðist af táli syndarinnar. Því að við erum orðin hluttakar Krists svo framarlega sem við treystum honum staðfastlega allt til enda eins og í upphafi.
Guðspjall:
Matt 25.1-13 Enn sagði Jesús: „Þá er líkt um himnaríki og tíu meyjar sem fóru til móts við brúðgumann með lampa sína. Fimm þeirra voru fávísar en fimm hyggnar. Þær fávísu tóku lampa sína en höfðu ekki olíu með sér en hinar hyggnu tóku olíu með á könnum ásamt lömpum sínum. Nú dvaldist brúðgumanum og urðu þær allar syfjaðar og sofnuðu.
Sálmur:
204 Fyrir þá alla, er fá nú hvíld hjá þér, Þú varst þeim sjálfur varnarskjólið traust, Ó, mættum vér gegn heimi heyja stríð, Þótt hugdirfð bregðist, hjartans kólni glóð, Í vestri kvöldsins bjarmi boðar frið, Og sjá - þá aftur dýrri dagur skín, How - Valdimar V. Snævarr Bæn dagsins:
Drottinn, hjálpa mér að efast ekki um að þú ert Guð - að Jesús er frelsari minn - að þú ert hjá mér með heilögum anda þínum. Amen.
|
|||||