Aðfangadagur páska, páskavaka
Laugardagurinn fyrir páska er kallaður laugardagurinn kyrri. Þá er íhugunarefnið: Jesús dvelst í gröf sinni. Þessi dagur hefur frá fornu fari engan lit í reglum um kirkjuliti.
Textaröð:
A
Pistill:
1Pét 3.18-22 Kristur dó fyrir syndir í eitt skipti fyrir öll, réttlátur fyrir rangláta, til þess að geta leitt ykkur til Guðs. Hann var deyddur að líkamanum til en lifandi ger í anda. Þannig steig hann niður til andanna í varðhaldi og prédikaði fyrir þeim. Þeir höfðu óhlýðnast fyrrum, á dögum Nóa, þegar Guð sýndi biðlund og beið meðan örkin var í smíðum. Í henni frelsuðust fáeinar - það er átta - sálir í vatni. Þetta er fyrirmyndan skírnarinnar sem nú frelsar ykkur. Hún er ekki hreinsun óhreininda á líkamanum heldur bæn til Guðs um góða samvisku fyrir upprisu Jesú Krists sem steig upp til himna, situr Guði á hægri hönd, og englar, völd og kraftar eru undir hann lagðir.
Guðspjall:
Matt 27.62-66 Næsta dag, hvíldardaginn, gengu æðstu prestarnir og farísearnir saman fyrir Pílatus og sögðu: „Herra, við minnumst þess að svikari þessi sagði í lifanda lífi: Eftir þrjá daga rís ég upp. Bjóð því að grafarinnar sé vandlega gætt allt til þriðja dags, ella gætu lærisveinar hans komið og stolið honum og sagt fólkinu: Hann er risinn frá dauðum. Þá verða síðari svikin verri hinum fyrri.“
Sálmur:
278 Góði Jesús, fyrir greftran þín Helgum Guðs börnum Herrans hold Svo að lifa, ég sofni hægt, Hallgrímur Pétursson (Ps. 49) Bæn dagsins:
Drottinn Jesús Kristur,
þú sem ert dáinn og grafinn fyrir okkur.
Þú ert stiginn niður til Heljar,
niður í ríki dauðans,
til sigra dauðann að eilífu.
Við sem erum skírð til dauða þíns.
biðjum þig :
Ver þú kraftur í okkur
til þess hið spillta, synduga eðli deyji daglega
og megum fyrir gröf þína og dauða þinn
megum eignast með þér sigur upprisinnar.
Þig lofum við að eilífu. Amen.
|
|||||