2. sunnudagur í níuviknaföstu (sexagesimae) - Biblíudagurinn
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Svo segir: „Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar eins og í uppreisninni.““ (Heb 3.15)
Kollekta:
Drottinn Jesús Kristur, þú sem ert orð lífsins. Þú gjörðist hold á jörðu og kunngjörðir oss leyndardóma Guðs ríkis: Gef oss náð til að trúa með fögnuði og treysta því, sem Heilög ritning boðar oss til hjálpræðis, því að þú lifir og ríkir með Guði föður í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Jes 55.6-13 Leitið Drottins meðan hann er að finna,
Pistill:
2Kor 12.2-9 Ég þekki kristinn mann. Fyrir fjórtán árum var hann hrifinn burt allt til þriðja himins. Hvort það var í líkamanum eða utan líkamans veit ég ekki. Guð veit það. Og mér er kunnugt um að þessi maður var hrifinn upp í Paradís og heyrði ósegjanleg orð sem engum manni er leyft að mæla. Hvort það var í líkamanum eða utan líkamans veit ég ekki. Guð veit það. Af slíku vil ég hrósa mér en af sjálfum mér vil ég ekki hrósa mér nema þá af veikleika mínum. Þótt ég vildi hrósa mér væri ég ekki frávita því að ég væri að segja sannleika. En ég veigra mér við því til þess að enginn skuli ætla mig meiri en hann sér mig eða heyrir.
Guðspjall:
Lúk 8.4-15 Nú var mikill fjöldi saman kominn og menn komu til Jesú úr hverri borg af annarri. Þá sagði hann þessa dæmisögu: „Sáðmaður gekk út að sá sæði sínu. Og þá er hann sáði féll sumt hjá götunni og varð fótum troðið og fuglar himins átu það upp. Sumt féll á klöpp. Það spratt en skrælnaði af því að það hafði ekki raka. Og sumt féll meðal þyrna og þyrnarnir spruttu einnig og kæfðu það. En sumt féll í góða jörð, óx upp og bar hundraðfaldan ávöxt.“ Að svo mæltu hrópaði Jesús: „Hver sem eyru hefur að heyra hann heyri.“
Sálmur:
117 Góðan ávöxt Guði berum, Lífdögg hann oss sendi sína: Góðan ávöxt Guði berum, Valdimar Briem Bæn dagsins:
Eilífi Guð,
Leiddu mig að vinjum þíns eilífa Orðs
Leiddu mig út úr eyðimörk örlaga og böls
Hjálpa mér að vera vakandi í þolinmæði og trúfesti
Kenndu mér tungumálið svo að ég skilji hvað þú segir
mér. Leiddu mig til baka að vinjum orðs þíns, svo að
ég sé hjá þér og lofi þig að eilífu.
|
|||||