Nýársdagur – 1. janúar - Í Jesú nafni
Áttidagur jóla. Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Hvað sem þið segið eða gerið, gerið það allt í nafni Drottins Jesú og þakkið Guði föður með hjálp hans.“ (Kól 3.17)
Kollekta:
Drottinn Guð, eilífi faðir, sem gafst oss einkason þinn að frelsara og bauðst, að hann skyldi heita Jesús: Veit oss af náð þinni, að vér sem tignum heilagt nafn hans á jörðu, fáum hann sjálfan að sjá og tilbiðja á himnum, því að hann lifir og ríkir með þér í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Slm 90.1b-4, 12 Drottinn, þú hefur verið oss athvarf Kenn oss að telja daga vora,
Pistill:
Gal 3.23-29 Áður en þessi leið var fær vorum við innilokuð í gæslu lögmálsins þangað til trúin, sem í vændum var, opinberaðist. Þannig hefur lögmálið orðið tyftari okkar þangað til Kristur kom til þess að við réttlættumst af trú. En nú, eftir að trúin er komin, erum við ekki lengur undir tyftara.
Guðspjall:
Lúk 2.21 Þegar átta dagar voru liðnir skyldi umskera hann og var hann látinn heita Jesús eins og engillinn nefndi hann áður en hann var getinn í móðurlífi.
Sálmur:
105 Í Jesú nafni áfram enn Í nafni hans æ nýtt er ár, Í nafni hans sé niður sáð Í nafni hans sé starf og stríð, Í nafni hans, þótt haust sé kalt, Í nafni hans vér hljótum ró, Í Jesú nafni endar ár, Á hverri árs- og ævitíð Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Guð,
um aldir hefur ljósið þitt ljómað
af ásjónu nýfædds barns í Betlehem
sem tákn elsku þinnar og návistar
mitt í ógn og illsku heimsins.
Við biðjum þig:
Látttu ljósið þitt lýsa okkur enn.
Leið okkur frá dauða til lífs,
frá lygi til sannleika,
frá vanmætti til vonar,
frá ótta til trausts,
frá hatri til kærleika,
frá stríði til friðar.
Hjálpa okkur að tendra ljós
fremur en að formæla myrkrinu
og lát frið þinn fylla hjörtu okkar,
allra manna, alheims.
Í Jesú nafni. Amen.
(Mitt i församlingen)
|
|||||