Pálmasunnudagur
Litur: Fjólublár. Dýrðarsöngur/lofgjörð ekki sungin.
Vers vikunnar:
„Þannig á Mannssonurinn að verða upp hafinn svo að hann veiti hverjum sem trúir á hann eilíft líf. “ (Jóh 3.14b-15)
Kollekta:
Eilífi Guð, sem lést son þinn, frelsara vorn, Jesú Krist, auðmýkja sig og ganga í
dauðann á krossi: Veit oss af miskunn þinni að líkjast honum í hógværð hjartans og
eignast hlutdeild í upprisu hans, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda,
einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Sak 9.9-10 Fagna mjög, dóttirin Síon,
Pistill:
Fil 2.1-11 Fyrst Kristur veitir kjark, fyrst kærleikur hans uppörvar, fyrst andi hans skapar samfélag, fyrst þar ríkir hlýja og samúð gerið þá gleði mína fullkomna með því að vera einhuga, hafa sama kærleika, einn hug og eina sál. Gerið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillát og metið hvert annað meira en ykkur sjálf. Lítið ekki aðeins á eigin hag heldur einnig annarra. Verið með sama hugarfari sem Kristur Jesús var.
Guðspjall:
Jóh 12.1-16 Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum. Þar var honum búinn kvöldverður og Marta gekk um beina en Lasarus var einn þeirra sem að borði sátu með honum. Þá tók María pund af ómenguðum, dýrum nardussmyrslum og smurði fætur Jesú og þerraði með hári sínu fætur hans. En húsið fylltist ilmi smyrslanna. Segir þá Júdas Ískaríot, einn lærisveina hans, sá er mundi svíkja hann: „Hví voru þessi smyrsl ekki seld fyrir þrjú hundruð denara Degi síðar frétti hinn mikli mannfjöldi, sem kominn var til hátíðarinnar, að Jesús væri að koma til Jerúsalem. Fólk tók þá pálmagreinar, fór út á móti honum og hrópaði:
Sálmur:
128 Ó, kom í hátign, Herra minn. Ó, kom í hátign, Herra minn, Ó, kom í hátign, Herra minn, Ó, kom í hátign, Herra minn, Ó, kom í hátign, Herra minn, Milman - Sb. 1871 Stefán Thorarensen Bæn dagsins:
Drottinn Jesús Kristur.
Fólkið kom á móti þér með fagnaðarópum
og hyllti þig.
Samt skildi það þig eftir einan.
svo að þú yrðir pyntaður og deyddur.
Við erum hrædd við dökku hliðarnar á mannlífinu,
hrædd við skuggana,
hrædd við möguleika illskunnar í mannfólkinu,
-í okkur sjálfum.
Gefðu okkur náð til að þekkja okkur sjálf
og að sjá hvað í okkur sjálfum býr.
Hjálpa þú okkur að koma með það allt til þín
að þú blessir það og bætir það með kærleika þínum.
Amen.
|
|||||