Páskadagur
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Ég dó en nú lifi ég um aldir alda og ég hef lykla dauðans og heljar.“ (Opb 1.18b)
Andstef: Drottinn er upprisinn, hann er sannarlega upprisinn.
Kollekta:
Eilífi Guð og faðir, þú sem með sigri einkasonar þína á dauðanum hefur opnað oss
dyrnar til eilífs lífs: Hjálpa oss, að sú góða von og þrá sem þú hefur með oss
vakið, megi lifa og dafna hjá þér. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með
þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Slm 118.14-24 Drottinn er styrkur minn og lofsöngur,
Pistill:
1Kor 5.7-8 Hreinsið burt gamla súrdeigið til þess að þið séuð nýtt deig enda eruð þið ósýrð brauð. Því að páskalambi okkar er slátrað sem er Kristur. Höldum því hátíð, ekki með gömlu súrdeigi eða súrdeigi illsku og vonsku heldur með ósýrðum brauðum hreinleikans og sannleikans.
Guðspjall:
Mrk 16.1-7 Þá er hvíldardagurinn var liðinn keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólarupprás, koma þær að gröfinni. Þær sögðu sín á milli: „Hver mun velta fyrir okkur steininum frá grafarmunnanum?“ En þegar þær líta upp sjá þær að steininum hafði verið velt frá en hann var mjög stór. Þær stíga inn í gröfina og sjá ungan mann sitja hægra megin, klæddan hvítri skikkju, og þær skelfdust.
Sálmur:
148 Í austri rís upp ársól skær, Það ógnarbjarg er oltið frá, Í Drottins gröf varð blítt og bjart, Þig boða englar upprisinn, Sem upp rís sól um árdagsstund Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Lifandi Drottinn,
með upprisu Sonar þíns
hefur þú tekið allan mátt frá dauðanum,
og lætur kunngjöra öllum heimi fagnaðarboðskapinn
um hjálpræðið í Jesú Kristi.
Sendu okkur styrk og kraft trúarinnar og sigra efann.
Leyfðu okkur öllum að taka með fögnuði
undir lofsöng páskanna,með öllum þeim
sem bera vitni um að Kristur er risinn upp frá dauðum
og lifir og ríkir að eilífu. Amen.
|
|||||