Síðasti sunnudagur kirkjuársins
Litur: Grænn eða hvítur.
Vers vikunnar:
„Því að öllum ber okkur að birtast fyrir dómstóli Krists“ (2Kor 5.10a)
Kollekta:
Almáttugi Guð, vér biðjum þig: Gef oss af náð þinni að mega þjóna þér í öllum verkum vorum. Helga þú ávöxt iðju vorrar og gjör oss minnug á kærleika þinn. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Jes 65.17-19 Sjá, ég skapa nýjan himin og nýja jörð
Pistill:
Róm 8.18-25 Ég lít svo á að þjáningar þessa tíma séu ekki neitt í samanburði við þá dýrð sem á okkur mun opinberast. Því að sköpunin vonar og þráir að Guðs börn verði opinber. Sköpunin er hneppt í ánauð hverfulleikans, ekki sjálfviljug heldur að vilja hans sem bauð svo, í þeirri von að sjálf sköpunin verði leyst úr ánauð sinni undir hverfulleikanum og fái frelsið í dýrðinni með börnum Guðs.
Guðspjall:
Matt 25.31-46 Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni og allir englar með honum, þá mun hann sitja í dýrðarhásæti sínu. Allar þjóðir munu safnast frammi fyrir honum og hann mun skilja þær að eins og hirðir skilur sauði frá höfrum. Sauðunum skipar hann sér til hægri handar en höfrunum til vinstri. Og þá mun konungurinn segja við þá til hægri: Komið þér, sem faðir minn á og blessar, og takið við ríkinu sem yður var ætlað frá grundvöllun heims. Því hungraður var ég og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég og þér komuð til mín.
Sálmur:
64 Vakna, Síons verðir kalla Síon hljóminn helga nemur, Eilíft lof með einum rómi Stefán Thorarensen Bæn dagsins:
Eilífi Guð,
þegar þú kemur til dóms
munu orð okkar og verk verða að engu.
Von okkar er Kristur.
Af því að hann hefur fórnað sér fyrir okkur
og tekið á sig refsingu okkar
biðjum við:
Lít til hans en ekki okkar
og sýkna okkur hans vegna,
við tilbiðjum hann ásamt þér og heilögum anda
að eilífu. Amen.
|
|||||