Sjómannadagurinn - Fyrsti sunnudagur í júníVers vikunnar:
„Síðan reis hann [Jesús] upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn.“ (Matt 8.26b)
Kollekta:
Almáttugi faðir, eilífi Guð. Þú vakir í föðurkærleik yfir öllu því sem þú hefur
skapað, náð þín er ný á hverjum degi. Ger oss minnug á gjafir þínar, að vér færum
þér líf vort að þakkarfórn. Lát oss lúta vilja þínum og treysta forsjón þinni. Fyrir
son þinn Jesú Krist,
Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um
aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Slm 107.1-2, 20-31
Þakkið Drottni því að hann er góður, sendi orð sitt og læknaði þá
Pistill:
Post 27.13-15, 20-25 Nú rann á hægur sunnanvindur. Hugðust þeir þá hafa ráð þetta í hendi sér, léttu akkerum og sigldu fram með Krít nærri landi. En áður en langt leið skall á af landi ofan fárviðri, hinn illræmdi landnyrðingur. Skipið hrakti og varð því ekki beitt upp í vindinn. Slógum við undan og létum reka. Dögum saman sá hvorki til sólar né stjarna og ekkert lát varð á ofviðrinu. Tók þá að þrjóta öll von um að við kæmumst af.
Guðspjall:
Matt 8.23-27 Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann og segja: „Drottinn, bjarga okkur, við förumst.“
Sálmur:
597 Sjá, bát á bárum hrakti, Guðs undur enn þá gerast Ef hann má fleyi fylgja Er syrtir lífs á leiðum Er héðan hinsta sinni Blix - Valdimar V. Snævarr Bæn dagsins:
Við þökkum þér, algóði faðir, að þú
hefur gefið okkur auðug fiskimið.
Við biðjum þig að hjálpa okkur að
gleyma ekki hve dýrmæt sú gjöf
er, og hversu lífsafkoma okkar
og velferð er háð vinnu þeirra
sem sækja sjó. Við minnumst
sjómannanna og biðjum þig að
fylgja þeim á ferðum þeirra, vaka
yfir þeim í hættum og erfiðleikum
og bjarga úr öllum háska, og
leiða þá heila heim til hafnar.
Blessa þá sem hlutu hina votu
gröf, og hugga ástvini þeirra
alla, fyrir Jesú Krist, Drottin
vorn. Amen.
(Karl Sigurbjörnsson)
|
|||||