Sumardagurinn fyrsti
Sumardagurinn fyrsti er fyrsti fimmtudagur eftir 18.apríl. Það er fyrsti dagur sumars að íslensku tímatali, og getur fallið á dagana 19. - 25. apríl.
Þetta var opinber messudagur fram um miðja 18. öld. Á síðustu öld varð sumardaginn fyrsti, fastur hátíðisdagur skátahreyfingarinnar og hefur verið haldinn hatíðlegur með messu í ýmsum kirkjum landsins. Dagurinn hefur einnig verið fermingarmessudagur í mörgum sóknum landsins um langt árabil.
Kollekta:
Miskunnsami Guð og faðir, þú seður allt, sem lifir með blessun: Lát oss ætíð minnast
forsjónar þinnar og þjóna þér í ábyrgð og trúmennsku. Fyrir son þinn Jesú Krist,
Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um
aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Slm 104.1-16 Lofa þú Drottin, sála mín.
Pistill:
Fil 4.4-9 Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð. Ljúflyndi ykkar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú. Að endingu, systkin, allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er dygð og hvað sem er lofsvert, hugfestið það.
Guðspjall:
Lúk 17.11-19 Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. Þeir stóðu álengdar, hófu upp raust sína og kölluðu: „Jesús, meistari, miskunna þú oss!“ Jesús sá þá og sagði við þá: „Farið og sýnið yður prestunum.“ Þeir héldu af stað og nú brá svo við að þeir urðu hreinir. En einn þeirra sneri aftur er hann sá að hann var heill orðinn og lofaði Guð hárri raustu. Hann féll fram að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji. Jesús sagði: „Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu? Urðu engir til þess að snúa aftur að gefa Guði dýrðina nema þessi útlendingur?“ Síðan mælti Jesús við hann: „Statt upp og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.“
Sálmur:
480 Dýrlegt kemur sumar með sól og blóm, Hærra' og hærra stígur á himinból Gróðurmagnað lífsaflið leysist skjótt, Guði' sé lof er sumarið gefur blítt, Blessuð sumardýrðin um láð og lá Sb. 1945 - Friðrik Friðriksson Bæn dagsins:
Guð minn lát mig líkjast ljúfum sumardegi. (Martin Lönnebo)
|
|||||