Sunnudagur milli jóla og nýárs
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara,eins og þú hefur heitið mér,því að augu mín hafa séð hjálpræði þitt.“ (Lúk 2.29-30)
Kollekta:
Almáttugi, eilífi Guð: Bein þú athöfnum vorum að því sem þér er þóknanlegt, svo að vér verðum auðug að góðum verkum. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Jes. 63.7-9, 15-16 Ég vil minnast velgjörða Drottins, Líttu niður frá himni og horfðu
Pistill:
Gal 4.1-7 Með öðrum orðum: Alla þá stund sem erfinginn er ófullveðja er enginn munur á honum og þræli þótt hann eigi allt. Hann er undir fjárhaldsmönnum og ráðsmönnum til þess tíma er faðirinn hefur ákveðið. Þannig vorum við einnig, er við vorum ófullveðja, í ánauð heimsvættanna. En þegar fylling tímans kom sendi Guð son sinn, fæddan af konu, fæddan undir lögmáli - til þess að hann keypti lausa þá sem voru undir lögmáli og við yrðum börn Guðs. En þar eð þið eruð börn, þá hefur Guð sent anda sonar síns í hjörtu okkar sem hrópar: „Abba, faðir!“ Þú ert þá ekki framar þræll heldur barn. En ef þú ert barn, þá hefur Guð líka gert þig erfingja.
Guðspjall:
Lúk 2.33-40 Faðir hans og móðir undruðust það er sagt var um hann. En Símeon blessaði þau og sagði við Maríu móður hans: „Þessi sveinn er settur til falls og til viðreisnar mörgum í Ísrael. Hann verður tákn sem menn munu rísa gegn. Og þar var Anna spákona Fanúelsdóttir af ætt Assers, kona háöldruð. Hún hafði lifað sjö ár með manni sínum þegar hann dó og síðan verið ekkja fram á áttatíu og fjögurra ára aldur. Hún vék eigi úr helgidóminum en þjónaði Guði nótt og dag með föstum og bænahaldi. Hún kom að á sömu stundu og lofaði Guð. Og hún talaði um barnið við alla sem væntu lausnar Jerúsalem.
Sálmur:
421 Brátt líður lífs á daginn, Þú, Drottinn, tíma telur Æ, kom, svo frið þinn fái' eg, Sb. 1871 - Stefán Thorarensen Bæn dagsins:
Eilífi Guð, miskunnsami faðir,
þú leyfðir öldungnum Símeoni
að sjá frelsarann
og kenndir honum eins og ekkjunni Önnu
orð til að lofa lausnarann.
Opna augu okkar,
að við sjáum geislandi birtu kærleika þíns
í syni þínum Jesú Kristi
sem með þér og heilögum anda
lifir og ríkir að eilífu.
Amen.
|
|||||