Sunnudagur milli nýárs og þrettánda
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Því að þín vegna býður hann út englum sínum
til þess að gæta þín á öllum vegum þínum. “ (Slm 91.11)
Kollekta:
Almáttugi, eilífi Guð: Bein þú athöfnum vorum að því sem þér er þóknanlegt, svo að
vér verðum auðug að góðum verkum. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með
þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
1Sam 2.1-10 Hanna bað og sagði:
Pistill:
1Þess 5.5-10 Þið eruð öll börn ljóssins og börn dagsins. Við heyrum ekki nóttunni til eða myrkrinu. Sofum því ekki eins og aðrir heldur vökum og verum allsgáð. Því að þau sem sofa, sofa um nætur og þau sem drekka sig drukkin, drekka um nætur. En við sem heyrum deginum til skulum vera allsgáð, klædd trú og kærleika sem brynju og voninni um frelsun sem hjálmi. Guð hefur ekki ætlað okkur að verða reiðinni að bráð heldur að öðlast sáluhjálp sakir Drottins vors Jesú Krists. Hann dó fyrir okkur til þess að við mættum lifa með honum, hvort sem við vökum eða sofum.
Guðspjall:
Matt 2.16-23 Þá sá Heródes að vitringarnir höfðu gabbað hann og varð afar reiður, sendi menn og lét myrða öll sveinbörn í Betlehem og nágrenni hennar, tvævetur og yngri en það svaraði þeim tíma er hann hafði komist að hjá vitringunum.
Sálmur:
108 Ó, hve dýrleg er að sjá Nóttin helga hálfnuð var, Þegar stjarna' á himni hátt Vitringar úr austurátt Stjarnan skær þeim lýsti leið, Stjarnan veitt oss einnig er, Villustig sú aldrei á Grundtvig - Sb. 1886 - Stefán Thorarensen Bæn dagsins:
Jesús Kristur, barn Guðs, ljós þjóðanna, þú hefur birst á meðal okkar, - ekki eins og einn hinna voldugu. Við sjáum þig, Jesúbarn, í móðurfaðmi. Gef okkur náð til þess að leita þín þar sem þú ert. Þá verður speki þessa heims auðmjúk og undrast yfir því hversu góður þú ert okkur. Þú ert frelsari okkar og bróðir. Amen.
|
|||||