Þjóðhátíðardagurinn 17. júníVers vikunnar:
„Ég mun ganga um mitt á meðal ykkar, vera Guð ykkar og þið verðið þjóð mín.“ (3Mós 26.12)
Kollekta:
Almáttugi Guð, sem hefur gefið oss land, þar sem vér höfum frelsi til að játa þitt heilaga nafn, tilbiðja þig og þjóna þér og leita ríkis þíns: Vér biðjum þig að kenna oss að meta þessa gjöf, varðveita hana og ávaxta til eilífra heilla fyrir oss og niðja vora. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda. Amen.
Textaröð:
A
Lexía:
Jer 32.38-41 Þeir skulu vera mín þjóð og ég skal vera þeirra Guð. Ég mun gefa þeim eitt hjarta og eina breytni svo að þeir sýni mér lotningu alla tíð, þeim sjálfum til heilla og sonum þeirra eftir þá. Ég geri við þá ævarandi sáttmála um að ég snúi mér ekki frá þeim heldur reynist þeim vel. Ég legg guðsótta í hjarta þeirra svo að þeir víki aldrei frá mér. Ég gleðst yfir þeim og reynist þeim vel og gróðurset þá í þessu landi í trúfesti, af heilum hug og öllum mætti.
Pistill:
1Tím 2.1-4 Fyrst af öllu hvet ég til að biðja og ákalla Guð og bera fram fyrirbænir og þakkir fyrir alla menn. Biðjið fyrir konungum og öllum þeim sem hátt eru settir til þess að við fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í guðsótta og siðprýði. Þetta er gott og þóknanlegt Guði, frelsara vorum, sem vill að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum.
Guðspjall:
Matt 7.7-12 Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar, og fyrir þeim sem á knýr mun upp lokið verða. Eða hver er sá maður meðal yðar sem gefur barni sínu stein er það biður um brauð? Eða höggorm þegar það biður um fisk? Fyrst þér sem eruð vond hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar á himnum gefa þeim góðar gjafir sem biðja hann?
Sálmur:
519 Upp, þúsund ára þjóð, Skín, sól, á sumarfjöll, Krjúp lágt, þú litla þjóð, Upp, upp, þú Íslands þjóð Kom, Jesú Kristí trú, Guð faðir, lífs vors líf, Sb. 1945 - Matthías Jochumsson Bæn dagsins:
Guð vors lands, vér þökkum þér
fyrir landið, sem þú hefur gefið oss.
Vér þökkum þér auðlegð landsins
gæða, frjósama mold og fengsæl mið,
tign og fegurð í stormum vetrar og
blíðu sumars, ægikrafta elds og ísa,
manndóm og menningu íslenskrar
þjóðar. Vér þökkum þér að þú hefur
vakað yfir þjóð vorri um aldir og
gefið oss frelsi og fullveldi. Blessa oss
gjafir þínar, hjálpa oss að varðveita
þær og ávaxta oss til blessunar
og niðjum vorum til heilla, í
trúmennsku og ábyrgð. Ver þú ávallt
Guð vors lands og faðir og frelsari
allra landsins barna, í frelsarans
Jesú nafni. Amen.
(Karl Sigurbjörnsson)
|
|||||