2. sunnudagur eftir þrettánda
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Lögmálið var gefið með Móse en náðin og sannleikurinn eru komin með Jesú Kristi.“ (Jóh 1.17)
Kollekta:
Almáttugi, eilífi Guð, þú sem öllu stjórnar á himni og á jörðu: Heyr í mildi bænir vorar og gef frið um vora daga. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
2Mós 33.17-23 Drottinn svaraði Móse: „Einnig þetta, sem þú sagðir, mun ég gera því að þú hefur fundið náð fyrir augum mínum og ég þekki þig með nafni.“ Þá sagði Móse: „Sýndu mér dýrð þína.“ Drottinn svaraði: „Ég mun sjálfur láta allan ljóma minn líða fram hjá þér og ég mun hrópa nafnið Drottinn frammi fyrir þér. Ég vil líkna þeim sem ég vil líkna og miskunna þeim sem ég vil miskunna.“ Enn fremur sagði hann: „Þú getur ekki séð auglit mitt því að enginn maður fær séð mig og haldið lífi.“ Síðan sagði Drottinn: „Þarna er staður, stattu uppi á klettinum. Þegar dýrð mín fer fram hjá læt ég þig standa í klettaskorunni og hyl þig með lófa mínum þar til ég er farinn fram hjá. Þegar ég tek lófa minn frá muntu sjá aftan á mig. Enginn fær séð auglit mitt.“
Pistill:
Róm 12.6-15 Við eigum margvíslegar náðargáfur samkvæmt þeirri náð sem Guð hefur gefið. Sé það spádómsgáfa þá notum hana í samræmi við trúna, sé það þjónustustarf skal gegna því, sé það kennsla skal sinna henni, sá sem hvetja skal geri það, sá sem gefur sé örlátur. Sá sem veitir forstöðu sé kostgæfinn og sá sem vinnur miskunnarverk geri það með gleði.
Guðspjall:
Jóh 2.1-11 Á þriðja degi var brúðkaup í Kana í Galíleu. Móðir Jesú var þar. Jesú var og boðið til brúðkaupsins og lærisveinum hans. En er vín þraut segir móðir Jesú við hann: „Þeir hafa ekki vín.“
Sálmur:
113 Hve sælt hvert hús, er sinna meðal gesta Hve sælt hvert hús, ef hjón þar saman búa Hve sælt hvert hús, er ber á bænarörmum Hve sælt hvert hús, er lætur unga læra Hve sælt hvert húsið, þar sem athöfn alla Helgi Hálfdánarson Bæn dagsins:
Miskunnsami Guð
í kærleika þínum er kraftur til umbreytingar.
Leyfðu okkur að komast að raun um,
að þú getur látið gleði vaxa upp úr sorginni,
frið og sátt verða milli þeirra sem deila,
öruggt traust fæðast í vonleysinu
og fyrirgefningu í sektinni.
Gef okkur styrk trúarinnar
að við treystum því að líf okkar beri ávöxt.
Þess biðjum við í nafni Jesú Krists
sem vitjar barna sinna.
Amen.
|
|||||