3. sunnudagur eftir þrettánda
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Þá munu menn koma frá austri og vestri, frá norðri og suðri og sitja til borðs í Guðs ríki.“ (Lúk 13.29)
Kollekta:
Almáttugi, eilífi Guð: Lít í líkn á veikleika vorn og réttu þína voldugu hönd til verndar oss. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
5Mós 10.17-21 Því að Drottinn, Guð ykkar, er Guð guðanna og Drottinn drottnanna. Hann er hinn mikli Guð, hetjan og ógnvaldurinn, sem gerir sér engan mannamun og þiggur ekki mútur. Hann rekur réttar munaðarleysingjans og ekkjunnar og sýnir aðkomumanninum kærleika og gefur honum fæði og klæði. Þið skuluð því sjálfir elska aðkomumanninn því að þið voruð sjálfir aðkomumenn í Egyptalandi.
Pistill:
Róm 12.16-21 Berið sama hug til allra, verið ekki stórlát, umgangist fúslega lítilmagna. Oftreystið ekki eigin hyggindum. Gjaldið engum illt fyrir illt. Stundið það sem fagurt er fyrir sjónum allra manna. Hafið frið við alla menn að því leyti sem það er unnt og á ykkar valdi. Leitið ekki hefnda sjálf, mín elskuðu, látið reiði Guðs um að refsa eins og ritað er: „Mín er hefndin, ég mun endurgjalda,“ segir Drottinn. En „ef óvin þinn hungrar þá gef honum að eta, ef hann þyrstir þá gef honum að drekka. Með því að gera þetta safnar þú glóðum elds á höfuð honum.“ Lát ekki hið illa sigra þig en sigra þú illt með góðu.
Guðspjall:
Matt 8.1-13 Nú gekk Jesús niður af fjallinu og fylgdi honum mikill mannfjöldi. Þá kom til hans líkþrár maður, laut honum og sagði: „Drottinn, ef þú vilt getur þú hreinsað mig.“
Sálmur:
207 Sú, trú, sem fjöllin flytur, Minn Jesús, lát ei linna Í trú mig styrk að stríða Helgi Hálfdánarson Bæn dagsins:
Guð, þú sem bjargar,
þú gefur og skapar
þú viðheldur og fullkomnar,
með heilögu orði þínu.
Tala þú orð þitt einnig inn í okkar neyð og ótta,
svo að við vinnum bug á þeim með þinni aðstoð
og þökkum þér hjálp þína
fyrir Jesú Krists.
Amen.
|
|||||