6. (síðasti) sunnudagur eftir þrettánda - Ummyndun
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Því að Guð sem sagði: „Ljós skal skína fram úr myrkri!“ lét það skína í hjarta mitt til þess að birtu legði af þekkingunni á dýrð Guðs eins og hún skín frá ásjónu Jesú Krists.“ (2Kor 4.6)
Kollekta:
Guð, sem staðfestir leyndardóma trúarinnar fyrir dýrlega ummyndum þíns elskaða sonar: Veit af náð þinni að vér megum verða samarfar ríkis hans og hluttakendur í dýrð hans, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
5Mós 18.15, 18-19 Spámann slíkan sem ég er mun Drottinn, Guð þinn, láta fram koma úr hópi ættbræðra þinna. Á hann skuluð þið hlýða. Fyrir þá mun ég láta fram koma spámann slíkan sem þú ert úr hópi bræðra þeirra. Ég mun leggja honum orð mín í munn og hann mun boða þeim allt sem ég býð honum. Og hvern þann sem ekki hlýðir á þau orð, sem spámaðurinn flytur í mínu nafni, mun ég sjálfur draga til ábyrgðar.
Pistill:
2Pét 1.16-21 Ekki notaði ég uppspunnar skröksögur er ég kunngjörði ykkur mátt og komu Drottins vors Jesú Krists heldur hafði ég verið sjónarvottur að hátign hans. Því hann meðtók af Guði föður heiður og dýrð þá er raust barst honum frá hinni dýrlegu hátign: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á.“ Þessa raust heyrði ég sjálfur koma frá himni þá er ég var með honum á fjallinu helga.
Guðspjall:
Matt 17.1-9 Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans, og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, ásjóna hans skein sem sól og klæði hans urðu björt eins og ljós. Og Móse og Elía birtust þeim og voru þeir á tali við Jesú. Pétur tók til máls og sagði við Jesú: „Drottinn, gott er að við erum hér. Ef þú vilt skal ég gera hér þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“
Sálmur:
119 Þótt holdið liggi lágt og læst í dróma, Hér niðri' á láði' er lágt Hér niðri' í djúpum dal Ó, hér er hark og stríð Þar tignartindi á Ég bjart lít blika ský Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Drottinn Jesús Kristur,
send ljóma dýrðar þinnar í hjörtu okkar
svo að við getum borið vitni um ljós þitt
í miðju myrkri þessa heims.
Því að þú lifir og ríkir
með föður og anda
og hefur á öllu vald til eilífðar.
Amen.
|
|||||