Þrettándinn - 6. janúar
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Myrkrið er að hverfa og hið sanna ljós er þegar farið að skína.“ (1Jóh 2.8c)
Kollekta:
Drottinn Guð, þú sem lést stjörnu vísa heiðingjum veg til einkasonar þíns: Unn oss, sem nú þekkjum þig fyrir trúna, að fá um síðir að líta fegurð hátignar þinnar. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Jes 60.1-6 Statt upp, skín þú, því að ljós þitt kemur
Pistill:
Ef 3.2-12 Víst hafið þið heyrt um þá náð sem Guð hefur sýnt mér og um það hlutverk sem hann hefur falið mér hjá ykkur: Með opinberun birtist mér leyndardómurinn. Um það hef ég stuttlega skrifað áður. Þegar þið lesið það getið þið skynjað hvað ég veit um leyndardóm Krists. Hann var ekki birtur mannanna börnum fyrr á tímum. Nú hefur Guð látið andann opinbera hann heilögum postulum sínum og spámönnum: Vegna samfélagsins við Krist Jesú og með því að hlýða á fagnaðarerindið eru heiðingjarnir orðnir erfingjar með okkur, einn líkami með okkur, og eiga hlut í sama fyrirheiti og við.
Guðspjall:
Matt 2.13-15 Þegar vitringarnir voru farnir þá vitrast engill Drottins Jósef í draumi og segir: „Rís upp, tak barnið og móður þess og flý til Egyptalands. Þar skaltu vera uns ég segi þér því að Heródes mun leita barnsins til að fyrirfara því.“
Sálmur:
568 Með gleðiraust og helgum hljóm Hjort - Magnús Stephensen Bæn dagsins:
Drotinn Guð, þú sem lést stjörnu
vísa vitringunum um langan
veg að jötu sonar þíns. Öll viska
mannanna, já, trú og siðir, verða
um síðir að lúta honum, sem kom
til að frelsa heiminn. Gef að allar
þjóðir, allir menn, fái að heyra
um hann og lúta honum í trú og
kærleika, Jesú Kristi, frelsara mínum
og Drottni. Amen.
|
|||||