4. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Berið hvert annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists.“ (Gal.6.2)
Kollekta:
Drottinn Guð, vér biðjum þig: Stýr þú rás heimsins til friðar, svo að kirkja þín
megi í rósemi og gleði þjóna þér. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með
þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Jer 7.1-7 Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni: Taktu þér stöðu við hliðið að húsi Drottins, flyttu þar þessa ræðu og segðu: Heyrið orð Drottins, allir Júdamenn, sem gangið inn um þetta hlið til að tilbiðja Drottin. Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Bætið breytni yðar og verk, þá mun ég búa á meðal yðar hér á þessum stað. Treystið ekki lygaræðum þegar sagt er: „Þetta er musteri Drottins, musteri Drottins, musteri Drottins.“ Nei, ef þér gerbreytið háttum yðar og verkum, ef þér sýnið sanngirni í deilum manna á meðal, kúgið ekki aðkomumenn, munaðarleysingja og ekkjur, úthellið ekki saklausu blóði á þessum stað og eltið ekki aðra guði yður til tjóns, þá mun ég búa á meðal yðar á þessum stað, í landinu sem ég gaf feðrum yðar til eignar um aldir alda.
Pistill:
Róm 14.7-13 Því að enginn okkar lifir sjálfum sér og enginn deyr sjálfum sér. Ef við lifum, lifum við Drottni, ef við deyjum, deyjum við Drottni. Hvort sem við þess vegna lifum eða deyjum þá erum við Drottins. Því að til þess dó Kristur og varð aftur lifandi að hann skyldi drottna bæði yfir dauðum og lifandi. En þú, hví dæmir þú bróður þinn? Eða þá þú, hví fyrirlítur þú bróður þinn? Öll munum við verða að standa frammi fyrir dómstóli Guðs. Því að ritað er: „Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn, fyrir mér skal hvert kné beygja sig og sérhver tunga vegsama Guð.“
Guðspjall:
Lúk 6.36-42 Verið miskunnsöm eins og faðir yðar er miskunnsamur. Dæmið ekki og þér munuð eigi verða dæmd. Sakfellið eigi og þér munuð eigi verða sakfelld. Fyrirgefið öðrum og Guð mun fyrirgefa yður. Gefið og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar. Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða.“
Sálmur:
196 Á þig, Jesú Krist, ég kalla, Eg svo hlýði ætíð þínum Fullkomnun, sem fyr'ir mig lagðir, Veit, að það, sem heimur heldur Þá skal trú mín, þýði Herra, Heyrir þú mitt hróp, ég treysti, Agricola - Sb. 1589 - Jón Espólín Bæn dagsins:
Miskunnsami Guð,
hvert ættum við að leita
ef skilningur og fyrirgefning væru ekki til,
heldur aðeins kuldi og harka og afskiptaleysi?
Gefðu okkur hlutdeild í hjartagæsku þinni.
Láttu okkur finna miskunnsemi,
og lifa í henni og iðka hana,
eins og þú sýndir okkur í Jesú Kristi.
Amen.
|
|||||