5. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Því að af náð eruð þið hólpin orðin fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka. Það er Guðs gjöf.“ (Ef 2.8)
Kollekta:
Drottinn Guð, þú, sem hefur fyrirbúið þeim er þig elska þá blessun, er ekkert auga
leit: Lát hjörtu vor fyllast kærleika, svo að vér elskum þig í öllu og öðlumst
þannig það, sem þú hefur heitið og yfirgnæfir allar óskir vorar. Fyrir son þinn Jesú
Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur
Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Jer 1.4-10 Orð Drottins kom til mín:
Pistill:
1Pét 2.4 -10 Komið til hans, hins lifanda steins, sem menn höfnuðu en er í augum Guðs útvalinn og dýrmætur. Látið sjálf uppbyggjast sem lifandi steinar í andlegt hús til heilags prestdóms, til að bera fram andlegar fórnir fyrir Jesú Krist, Guði velþóknanlegar. Því að svo stendur í Ritningunni:
Guðspjall:
Lúk 5.1-11 Nú bar svo til að Jesús stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð. Þá sá hann tvo báta við vatnið en fiskimennirnir voru farnir í land og þvoðu net sín. Hann fór út í þann bátinn er Símon átti og bað hann að leggja lítið eitt frá landi, settist og tók að kenna mannfjöldanum úr bátnum. Þegar hann hafði lokið ræðu sinni sagði hann við Símon: „Legg þú út á djúpið og leggið net ykkar til fiskjar.“ Símon svaraði: „Meistari, við höfum stritað í alla nótt og ekkert fengið en fyrst þú segir það skal ég leggja netin.“ Nú gerðu þeir svo og fengu þeir þá mikinn fjölda fiska en net þeirra tóku að rifna. Bentu þeir þá félögum sínum á hinum bátnum að koma og hjálpa sér. Þeir komu og hlóðu báða bátana svo að nær voru sokknir. Þegar Símon Pétur sá þetta féll hann á kné frammi fyrir Jesú og sagði: „Far þú frá mér, Drottinn, því að ég er syndugur maður.“ En felmtur kom á hann og alla þá sem með honum voru vegna fiskaflans er þeir höfðu fengið. Eins var um Jakob og Jóhannes Sebedeussyni, félaga Símonar. Jesús sagði þá við Símon: „Óttast þú ekki, héðan í frá skalt þú menn veiða.“ Og þeir lögðu bátunum að landi, yfirgáfu allt og fylgdu honum.
Sálmur:
182 Legg þú á djúpið eftir Drottins orði Legg þú á djúpið, þegar Kristur kallar, Legg þú á djúpið, þú, sem enn ert ungur, Legg þú á djúpið, þú sem þreyttur lendir Legg þú á djúpið, ó, þú sál mín auma, Sb. 1886 - Matthías Jochumsson Bæn dagsins:
Eilífi Guð, þú sem kallar í þína þjónustu karla og konur
og framkvæmir með þeim verk þitt á jörðu.
Við biðjum þig:
Opna þú eyru okkar og hjörtu,
að við heyrum þegar þú kallar
og fylgjum honum sem þú sendir,
Jesú Kristi, sem er bróðir okkar og Drottinn,
og lifir og ríkir með þér og heilögum Anda
frá eilífð til eilífðar.
|
|||||